Skip to content

Lýst eftir aðstoð

Þó íslenska fjölmiðlaflóran sé frekar lítil, er alltaf hætta á að okkur yfirsjáist einhver umfjöllun um málefni nímenningana.

Þannig að lesendur og allir velunnarar eru beðnir um að hafa augu og eyru opin og senda okkur ábendingar ef málefni nímenninganna koma einhverstaðar til umræðu á opinberum vettvangi.

Það er sérstaklega á Moggablogginu, í Útvarpi Sögu eða á INN sem við gætum misst af einhverri umfjöllun.

Það er mjög mikilvægt fyrir okkur öll að fylgjast vel með umræðunni og hvernig hún þróast. 

Sömu leiðis eru allar ábendingar um skyld efni vel þegin: Ummæli og umræður um mótmæli við Alþingi, í Alþingi og þó sérstaklega á pöllum Alþingis fyrr á árum. Allt slíkt hjálpar okkur við að halda uppi vörnum fyrir nímenningana í fjölmiðlum og annarstaðar á opinberum vettvangi – og um leið hjálpar það okkur að berjast fyrir réttindum borgaranna að mótmæla ríkisvaldinu, réttindi okkar allra til að standa upp og láta i okkur heyra - jafnvel þegar það hentar ekki valdstjórninni!

Allar ábendingum má koma á framfæri annað hvort í athugasemdir við þessa færslu – eða í tölvupósti á Rvk9.org@gmail.com

Post a Comment

Your email is never published nor shared. Required fields are marked *
*
*
*