Skip to content

Samstöðuatburður með nímenningunum sem ákærðir eru fyrir árás á Alþingi

Skríllinn gegn ákæruvaldinu!
Samstöðuatburður með nímenningunum sem ákærðir eru fyrir árás á Alþingi
Nýlistasafnið – Skúlagötu 28 – Laugardaginn 3. júlí – kl. 17:00

Guðrún Eva Mínervudóttir og Kristín Eiríksdóttir
Magnús Pálsson
Libia Castro og Ólafur Ólafsson
Sara Björnsdóttir
Reykjavík!
Jón Örn Loðmfjörð
Katrín Ólafsdóttir
Perspired by Iceland
Arnljótur Sigurðsson
Einar Már Guðmundsson
Rúst!
Örn Karlsson
Una Björk Sigurðardóttir
Rakel McManon
Katrín I Jónsdóttir Hjördísardóttir Hirt
Ragnar Kjartansson
Ásmundur Ásmundsson
Ingólfur Gíslason
Páll Haukur Björnsson
Bryndís Björgvinsdóttir
Kolbeinn Hugi Höskuldsson
Egill Sæbjörnsson
Hrafnkell Sigurðsson

Samstöðuatburður með nímenningunum sem ákærðir eru fyrir árás á Alþingi Nýlistasafnið – Skúlagötu 28 – Laugardaginn 3. júlí – kl. 17:00Eðli kerfisins samkvæmt komum við eins og kölluð, gelgreidd og geld, er valdstjórnin hrópar. Afhendum handstöngla okkar blíðlega, krjúpandi, lútandi, og bjóðum allar hinar kinnarnar þegar ákæruvaldið kallar. Leggjumst hljóðlega niður, berbrjósta á naglabrettið, og biðjum pent: Kæru herrar – vinsamlegast misþyrmið!

En skríllinn er ekki skríll fyrir ekki neitt. Og þó sverð okkar liggi oft í slíðrum, rykfalli og safni árum, af diplómatískum sjálfsdáleiðsluhefðum, og þó tennur okkar virðist grána eftir því sem vörunum er lengur haldið saman, þá eru sverðin ennþá beitt og tennurnar hvassar. Skríllinn hefur engu gleymt, hann kann enn að slá á móti!

Hlýðni er ekki dyggð og þegnleg kurteisi framkallar ekkert nema falsaða ljósmynd af friðarsvæði, þar sem enginn fær að sjá það sem býr handan linsunnar. Það er löngu kominn tími til að snúa spilunum við. Seinni hálfleikur er að hefjast og línurnar eru skýrari en áður: Nú er það skrílinn gegn ákæruvaldinu!

Post a Comment

Your email is never published nor shared. Required fields are marked *
*
*
*