3. júlí síðastliðinn var samstöðuatburðurinn Skríllinn gegn ákæruvaldinu! haldinn í Nýlistasafninu. Haukur Már Helgason tók atburðinn upp og bjó til myndbandið hér fyrir ofan.
Skríllinn gegn ákæruvaldinu! hefur nú vikið úr aðalrými nýlistasafnsins fyrir sýningunni Old News. En frá 10. júlí verða valin verk frá samstöðuatburðinum til sýnis í aftara rými safnsins, sett upp á nýja vegu. Sýningarnar munu standa yfir til 14. ágúst og á meðan henni stendur munu einhverjir viðburðir fara fram í safninu, tengdir efni sýninganna: Fréttum, tjáningarfrelsi, dómsmálinu yfir nímenningunum og þar fram eftir götunum. Meðal þess sem mun eiga sér stað eru pallborðsumræður um fjölmiðla, málfrelsi, mannréttindi og upplýsingasamfélagið, undir stjórn Hauks Más Helgasonar heimspekings. Tímasetning pallborðsumræðna og listi þátttakenda verður nánar auglýstur í fjölmiðlum og á heimasíðu Nýlistasafnsins.


















































Post a Comment