Veturinn 2008-2009: Fólk hópaðist út á götur og felldi ríkisstjórn. Síðar meir voru 9 einstaklingar valdir út og sakaðir um brot á 100. grein hegningarlaga.
ÁRÁS SMÁRÁS! Tónleikar til stuðnings nímenningunum á Nasa, fimmtudaginn 13. janúar kl. 20:30.
Fram koma:
MÚM / PÁLL ÓSKAR / SIN FANG BOUS / DISKÓEYJAN / KK OG ELLEN / PARABÓLURNAR / REYKJAVÍK! / EINAR MÁR / STEINI ÚR HJÁLMUM / PRINS PÓLÓ / ELLEN K. OG PÉTUR H./ ELÍN EY / ARNLJÓTUR / IDIR / ÁKÆRÐUR NÍMENNINGUR og fleiri óvæntir gestir….
500 kr. inn (frjáls framlög vel þegin, tökum ekki kort). Húsið opnar kl. 20:30, tónleikarnir hefjast strax, myndatökur á staðnum og fleiri uppákomur til stuðnings málstaðnum.
Veturinn 2008-2009 hópaðist fólk út á götur og felldi ríkisstjórn. Síðar meir voru 9 einstaklingar valdir út og ákærðir fyrir brot á 100. grein hegningarlaga sem varðar árás á alþingi. Viðurlög fyrir slíkt brot er 1-16 ára fangelsisvist (til samanburðar er engin lágmarksrefsing fyrir hryðjuverk bundin í lög og hámarksrefsing fyrir stórfelld brot ráðherra í starfi nemur tveggja ára fangelsi).
Í þessum pólitíska gjörningi kristallast stórhættulegt virðingarleysi yfirvalda gagnvart rétti fólks til að mótmæla – sem felur í sér virðingarleysi gagnvart almenningi sem og lýðræðinu sem slíku. ÁRÁS SMÁRÁS eru tónleikar til stuðnings níumenningunum og hvatning til fólks um að fylgjast með aðalmeðferð málsins dagana 18.- 20. janúar.


















































2 Comments
Þetta er valdníðsla að verstu gráðu og hneysa fyrir Lýðveldið !
Þetta er valdníðsla af verstu gráðu og hneysa fyrir Lýðræðið
Post a Comment