Dómari spyr hvort ákærðu séu mætt, verjandi svarar því játandi. Dómari spyr ákærðu að lögheimili og tjáir þeim að þeim sé ekki skylt að tjá sig fyrir dóminum en kjósi þau að gera það sé þeim skylt að svara satt og greina rétt frá. Dómari biður Sunnevu að taka afstöðu til ákærunnar. Sunneva segist alfarið neita að tjá sig og krefst þess að málinu verði vísað frá. Dómari spyr hvort Sunneva neiti sök, verjandi áréttar frávísunarkröfu.
Verjandi og saksóknari leggja fram gögn til dómara. Dómari leggur til að að verjandi og saksóknari hittist og fari yfir málið í sameiningu, ákæruvaldið meti svo stöðuna í kjölfarið. Krafa um frávísun er bókuð, dagsett í dag. Dómari: „Verjandi ákærðu krefst frávísunar málsins og leggur fram bókun þess efnis. Dómari og sakflytjendur eru sammála um að málinu verið frestað ótiltekið áður en tekin verður afstaða til málflutnings um frávísunarkröfu. Þá er þetta svona, má bjóða ykkur útprentun?“ Saksóknari og verjandi játa. Dómari verður látinn vita síðar í dag hvernig fundi verjanda og sækjanda lyktar. Útprentun afhent.
Þingi slitið.


















































Post a Comment