Ákæra.Settur ríkissaksóknari Lára V. Júlíusdóttir hrl. gjörir kunnugt
Að höfða ber sakamál fyrir Héraðsdómi Reykavíkur á hendur
[Nöfn nímenninganna]
I.
Gegn ákærðu öllum fyrir brot gegn Alþingi, brot gegn valdstjórninni, almannafriði og allsherjarreglu og húsbrot með því að hafa, þann 8. desember 2008, ásamt hópi óþekktra manna, í heimildarleysi ruðst inn í Alþingishúsið við Austurvöll meðan á þingfundi stóð. Til að komast inn í Alþingishúsið og áleiðis upp á þingpalla veittust ákærðu að þingvörðunum [nafn þingvarða], með ofbeldi og hótun um ofbelid og ofríki, en þingvörðunum var haldið, þeim ýtt úr vegi og þeir hindraðir við störf sín. Ruddust ákærðu inn í husið og upp stiga að þingpöllum og veittust með sama hætti að þingvörðunum [nafn þingvarða], og lögreglumanninm [nafn lögreglumanns], í þeim tilgangi að komast upp á þingpalla. Með háttsemi sinni rufu ákærðu friðhelgi Alþingis og starfsfrið auk þess sem öryggi Alþingis var hætta búin. Allt eins og nánar er lýst í liðum 1-5:
1. Ákærði [nafn nímennings 9] tálmaði þingverðinum [nafn þingvarðar 1] í störfum sínum með því að halda austurdyrum á Alþingishúsinu opnum þrátt fyrir að [þingvörður 1] reyndi að loka þeim.
2. Ákærði [nafn nímennings 1] veittist að þingverðinum [nafn þingvarðar 1] aftan frá, ýtti henni út úr húsinu og hélt henni fastri með aðstoð óþekkts einstaklings svo mannsöfnuðurinn, þar með talin meðákærðu, gæti óhindrað ruðst inn í húsið.
3. Áærða [nafn nímennings 6] ýtti við þingverðinum [nafn þingvarðar 2] til að komast sjálf inn í Alþingishúsið og tók í þingvörðinn [nafn þingvarðar 3] og hélt honum til að greiða fyrir leið að stiganum. Ennfremur tók hún um þingvörðinn [nafn þingvarðar 4], ýtti henni úr vegi og hélt henni er þingvörðurinn reyndi að varna mannsöfniðunum inngöngu.
4. Áærði [nafn nímennings 1] veittist, ásamt tveimur óþekktum mönnum, að þingverðinum [nafn þingvarðar 2] í störfum sínum er þingvörðurinn reyndi að varna mannsöfnuðinum inngöngu, ýtti honum og hélt honum föstum upp við vegg.
5. Ákærði [nafn nímennings 1] braust kröftuglega um er þingvörðurinn [nafn þingvarðar 2] reyndi að koma honum út og í átökunum ýtti hann með hægri handlegg sínum í þingvörðinn [nafn þingvarðar 1] svo hún féll aftur fyrir sig á miðstöðvarofn í anddyrinu.
6. Er ákærðu, ásamt hópi óþekktra manna, ruddust upp stiga að þingpöllum vörnuðu þingverðirnir [nafn þingvarðar 5] og [nafn þingvarðar 6] ásamt lögreglumanninum [nafn lögreglumanns 1] þeim frekari uppgöngu og skömmu síðar komu þingverðirnir [nafn þingvarðar 3]og [nafn þingvarðar 4] þeim til hjálpar, en mannsöfnuðirinn, þar með talin ákærðu, reyndi að komast framhjá þeim með því að ýta við þeim, ryðjast og klifra yfir þá. Ákærði [nafn nímennings 5], ásamt óþekktri konu, komst upp á þingpalla og þar hrópaði hann á þingmenn að koma sér út.
Afleiðingar atlögunnar voru þær að [lýst áverkum þingvarða, en þeir eru "tognun", "mar", "tognun", "mar", "mar", "eymsl", "væga tognun", og loks "áverka".]
Telst háttsemi ákærðu varða við 1. mgr. 100. gr., 1. mgr. 106. gr., 107. gr., 1. og 2. mgr. 122. gr. og 231. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
II.
Gegn ákærða [nafn nímennings nr 1] fyrir brot gegn valdstjórninni með því að hafa, í kjölfar þess sem lýst er í I. kafla ákæru, ráðist á lögreglumennina [nöfn lögreglumanna], bitið [nafn lögreglumanns] í vinstri hönd og bitið [nafn lögreglumanns] í vinstri öxl. Við þetta hlaut [nafn lögreglumanns] mikil eymsli, roða og bólgu í vinstri hendi og [nafn lögreglumanns] mar aftan á vinstri öxl.
Telst þetta varða við 1. mgr. 106. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
III.
Gegn ákærða [nafn nímennings nr 5.] fyrir brot gegn valdstjórninni með því að hafa, í kjölfar þess sem lýst er í I. kafla ákæru, reynt að frels ahandtekinn mann úr höndum lögreglumannsins [nafn lögreglumanns] er lögreglumenn voru að flytja handtekna aðila út úr Alþingishúsinu við inngang á afturhlið hússins.
Telst þetta varða við 1. mgr. 106. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
IV.
Gegn ákærðu [nafn nímennings nr. 7.] fyrir brot gegn lögreglulögum með því að hafa, í kjölfar þess sem lýst er í I. kafla ákæru, hlaupið í tvígang inn á svæði sem búið var að girða af með lögregluborða við Kirkjustræti og Vonarstræti og í átt að lögreglumönnum sem unnu að flutningi handtekinna einstaklinga og truflað þannig störf lögreglu og óhlýðnast fyrirmælum hennar.
Telst þetta varða við 19. og 21. gr. sbr. 1. mgr. 41. gr. lögreglulaga nr. 90/1996.
Þess er krafist að ákærðu verði dæmd til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.
Einkaréttarkröfur.
Af hálfu [nafn þingvarðar 1.] er krafist skaðabóta úr hendi ákærða [nafn nímennings nr 1] að fjárhæð kr. 877.480 auk vaxta samkvæmt 8. gr. vaxtarlaga nr. 38/2001 frá 8. desember 2008 þar til mánuður er liðinn frá því sakborningi var kynnt bótakrafa, en dráttarvaxta skv. III. kafla vaxtalaga frá þeim degi til greiðsludags sbr. 9. gr. sömu laga. Ennfremur er krafist greiðslu þóknungar réttargæslumanns.
Reykjavík 1. mars 2010
Lára V. Júlíusdóttir hrl.
settur ríkissaksóknari
Efnisyfirlit
Content in English
-
Forsíða og fréttir
Samstöðu yfirlýsing
Smelltu á mynd til að stækka

















































Sendu myndina þína á samstada.rvk9@gmail.com
Twitter
Styrktarsjóður nímenninganna
Rn: 513-14- 600813
Kt: 610174-4189Undirskrifta- söfnun
Hafa samband Contact
rvk9@riseup.net
Dómsmál & kúgun // Repression links
Íslenskir tenglar // Icelandic links
Aðrir tenglar // Other links
Eldra efni Archive
- August 2011 (1)
- June 2011 (1)
- April 2011 (2)
- March 2011 (10)
- February 2011 (30)
- January 2011 (182)
- December 2010 (8)
- November 2010 (15)
- October 2010 (7)
- September 2010 (10)
- August 2010 (2)
- July 2010 (5)
- June 2010 (2)
- May 2010 (7)
-
RSS Links
Meta