Skip to content

Author Archives: Administrator

Stuðningstónleikar á Austurvelli næsta laugardag til stuðnings nímenningunum

VORKOMA Tónleikar og stuðningssamkoma til styrktar ákærðu nímenningunum Fram koma: Páll Óskar Hjaltalín KK og Ellen Rass Meðlimir úr Hjálmum Ólöf Arnalds Parabólurnar Varsjárbandalagið Ari Eldjárn Vilborg Dagbjarts Jón Atli J. …og fleiri Aðgangur að sjálfsögðu ókeypis. Miðum verður dreift með reikningsnúmeri fyrir frjáls framlög, vegna lögfræðikostnaðar.

Eftir Vorkomu

Tónleikar síðasta laugardags Stöð 2 gerði stuðningstónleikunum góð skil í kvöldfréttunum. Sólveig Anna Jónsdóttir hélt stutta ræðu sem má sjá á youtube. Birgitta Jónsdóttir þingmaður Hreyfingarinnar skrifar á Svipunni „Hverjum datt í hug að kæra útfrá 100 greininni? Svar óskast!“ Á Deigluni gagnrýnir Jóhann Már Helgason þingsályktunartillöguna sem nú liggur fyrir Alþingi. Freedomfries á Eyjuni [...]

Íslenska umræðuplanið

Hvernig fjölmiðar og aðrir dómarar götunnar hafa dæmt níumenningana fyrirfram

Þann 8. desember 2008 fóru þrjátíu manns inn í Alþingishúsið. Tveir einstaklingar, af sitthvoru kyni, fóru upp á þingpalla og hvöttu þingmenn til að koma sér út úr húsi sem þjónaði ekki tilgangi sínum lengur. Aðrir voru stöðvaðir í stigaganginum, þeim var hótað piparúðun og lentu síðar meir sumir í stimpingum við lögreglu og þingverði. Nokkrir voru handteknir, yfirheyrðir og svo sleppt – þinghald tafðist um klukkustund. Rúmu ári seinna var níu einstaklingum – undirritaður þar með talinn – stefnt af Láru V. Júlíusdóttur, settum ríkissaksóknara, meðal annars fyrir árás gegn sjálfræði Alþingis. Refsiramminn sem héraðsdómaranum Pétri Guðgeirssyni er gert að dæma okkur eftir, er eins árs til lífstíðarfangelsi.

Sönnunargögn í sjónvarpinu

Í kvöldfréttum Rúv og ýtarlegri umfjöllun í Kastljósinu 20. mai eru myndbönd frá öryggismyndavélum Alþingis sýnd. Upptökurnar sýna greinilega hvernig sá liður ákærunnar gegn nímenningunum sem snýr að ofbeldi og árásum að starfsmönnum Alþingis beri ekki saman við sönnunargögnin. Þá er einnig í Kastljósinu viðtal við Sólveigu Jónsdóttir og Snorra Pál Jónsson Úlfhildarson, tvö þeirra [...]

Ákærurnar á hendur nímenningunum

Ákærurnar á hendur nímenningunum: (af Freedomfries) Ákæra. Settur ríkissaksóknari Lára V. Júlíusdóttir hrl. gjörir kunnugt Að höfða ber sakamál fyrir Héraðsdómi Reykavíkur á hendur [Nöfn nímenninganna] I. Gegn ákærðu öllum fyrir brot gegn Alþingi, brot gegn valdstjórninni, almannafriði og allsherjarreglu og húsbrot með því að hafa, þann 8. desember 2008, ásamt hópi óþekktra manna, í [...]

Lýst eftir aðstoð

Þó íslenska fjölmiðlaflóran sé frekar lítil, er alltaf hætta á að okkur yfirsjáist einhver umfjöllun um málefni nímenningana. Þannig að lesendur og allir velunnarar eru beðnir um að hafa augu og eyru opin og senda okkur ábendingar ef málefni nímenninganna koma einhverstaðar til umræðu á opinberum vettvangi. Það er sérstaklega á Moggablogginu, í Útvarpi Sögu [...]

Þegar þögnin ein er eftir

Grein eftir Snorra Pál Jónsson Úlfhildarson (einn af ákærðu) sem birtist í Fréttablaðinu 28. maí. Ímyndum okkur að skyndilega kæmu á yfirborðið upplýsingar sem myndu draga í efa eitthvað af þeim röksemdarfærslum sem sérstakur saksóknari beitti fyrir sig þegar hann handtók á dögunum nokkra háttsetta bankamenn og fékk staðfest gæsluvarðhald yfir þeim. Hvað svo sem [...]

Samstöðuatburður með nímenningunum sem ákærðir eru fyrir árás á Alþingi

Skríllinn gegn ákæruvaldinu! Samstöðuatburður með nímenningunum sem ákærðir eru fyrir árás á Alþingi Nýlistasafnið – Skúlagötu 28 – Laugardaginn 3. júlí – kl. 17:00 Guðrún Eva Mínervudóttir og Kristín Eiríksdóttir Magnús Pálsson Libia Castro og Ólafur Ólafsson Sara Björnsdóttir Reykjavík! Jón Örn Loðmfjörð Katrín Ólafsdóttir Perspired by Iceland Arnljótur Sigurðsson Einar Már Guðmundsson Rúst! Örn [...]

Fjölmiðlavaktin

Við höfum sett upp sérstaka undirsíðu (sjá flipa hér að ofan) þar sem við höldum til haga allri fjölmiðlaumfjöllun, og ekki síður bloggskrifum, um mál nímenninganna. Sjá hér: Fjölmiðlavaktin Öll hjálp við að halda utan um fjölmiðla- og bloggumfjöllun um mál nímenninganna og skyld mál er vitaskuld meira en vel þegin!

rvk9.org á ensku

Við höfum sett upp undirsíðu þar sem öllum fréttum og greinum um málefni nímenninganna sem birst hafa á ensku eiga að vera aðgengilegar. Sjá hér: In English

Skríllinn í Víðsjá

Í Víðsjá 2 júlí 2010 var fjallað um “Skrílinn”, sérstaklega út frá málefni nímenninganna. Hlusta má á upptöku af Víðsjá hér. Rvk9.org er sérstaklega ánægt með umfjöllun Njarðar Sigurjónssonar um búsáhaldabyltinguna og málefni nímenninganna, sem hann sagði í raun hafa verið fyrstu bylgju, “framvarðasveit” búsáhaldabyltingarinnar. Njörður vitnaði í þættinum í grein sem Sigurður Líndal skrifaði [...]

Árásir á Alþingi koma Alþingi ekki við?!

Eftirfarandi grein eftir Magnús Svein Helgason birtist í Grapevine í dag (2. júlí 2010). Þar sem greinin er ekki komin á vef Grapevine fékk rvk9.org leyfi til að birta hana hér, með góðfúslegu leyfi Grapevine og Magnúsar: Attacks On Alþingi Are Of No Concern To Alþingi Up is down, obedience is freedom, fiction is fact, [...]

Stuðningsmótmæli í Barcelona

Eftirfarandi texti og myndir bárust okkur frá Barcelona. Textinn hefur verið þýddur af ensku sem er fyrir neðan þann íslenska: Að hádegi fimmtudagsins 8. júlí hittust tuttugu manns við íslensku ræðismannaskrifstofuna í Barcelona, til að sýna reiði sína í garð íslenska ríkisins vegna réttarhaldanna sem nú fara fram yfir nímenningunum sem ákærðir eru fyrir árás [...]

Samstaða með Reykjavík 9 á Nýló

3. júlí síðastliðinn var samstöðuatburðurinn Skríllinn gegn ákæruvaldinu! haldinn í Nýlistasafninu. Haukur Már Helgason tók atburðinn upp og bjó til myndbandið hér fyrir ofan. Skríllinn gegn ákæruvaldinu! hefur nú vikið úr aðalrými nýlistasafnsins fyrir sýningunni Old News. En frá 10. júlí verða valin verk frá samstöðuatburðinum til sýnis í aftara rými safnsins, sett upp á [...]

Hvað þýðir þögnin?

Greinin birtist upphaflega í Fréttablaðinu, mánudaginn 16. ágúst 2010. Á morgun fer fram fyrirtaka í dómsmáli ríkisins gegn nímenningunum sem eru ákærðir fyrir árás á Alþingi, 8. desember 2008. Frá því að málið var þingfest fyrir hálfu ári og því fylgt eftir með hasarfréttamennsku og yfirlýsingagleði helstu fjölmiðla, hefur harðri gagnrýni á ákærurnar vaxið fiskur [...]

Staðan í dag

Ótrúlegt en satt, en nú, tæpu hálfu ári eftir að ákærurnar á hendur nímenningunum voru upphaflega þingfestar er málið nánast á byrjunarreit. Aðalmálsmeðferð er enn ekki hafin og ekki vitað hvenær hún getur farið fram. Það er þó ekki að ástæðulausu. Ragnar Aðalsteinsson, verjandi fjögurra nímenninganna, hefur ítrekað bent á vankanta málsins og stigið fram [...]

Réttlæti réttarríkisins

Grein þessi birtist upphaflega í Fréttablaðinu, miðvikudaginn 8. september 2010. Mál ríkisins gegn nímenningunum heldur áfram í dag og mun Ragnar Aðalsteinsson, verjandi fjögurra okkar, færa rök fyrir vanhæfni setts saksóknara, Láru V. Júlíusdóttur, vegna náinna tengsla hennar við brotaþolann Alþingi. Það er óþarfi að fara nánar út í sjálfar ákærurnar og gagnrýnina á þær, [...]

Afvegaleidd umfjöllun Morgunblaðsins

„Morgunblaðið gaf tóninn fyrir afvegaleidda umfjöllun um mál nímenninganna, strax daginn eftir að atburðurinn sem leiddi til ákæranna átti sér stað.“ Grein þessi birtist í Morgunblaðinu, laugardaginn 11. september 2010. _____________________________________________ Undirritaður er einn nímenninganna sem íslenska ríkið hefur stefnt og krafist refsingar yfir vegna atviks sem átti sér stað í þinghúsinu þann 8. desember [...]

Greinargerð Ragnar Aðalsteinssonar til Hæstaréttar – um vanhæfni dómara

Eins og áður hefur komið fram á þessari síðu skar Pétur Guðgeirsson, dómari í máli ríkisins gegn nímenningunum, úr um eigin hæfni þann 18. ágúst sl. – daginn eftir að Ragnar Aðalsteinsson, verjandi fjögurra nímenninganna fór fram á að hann viki sæti vegna vanhæfis í starfi. Fjórmenningarnir kærðu þá niðurstöðu til Hæstaréttar og skrifaði Ragnar [...]

Hvað gerist 15. september?

Samkvæmt vefsíðu Héraðsdóms Reykjavíkur er næsta fyrirtaka í máli ríkisins gegn nímenningunum, næstkomandi miðvikudag, þann 15. september. Á vefnum fær fyrirtakan einungis 20 mínútur – frá 08:30 til 08:50 – sem verður að teljast örskammur tími fyrir fyrirtöku í slíku máli. Vitað er að Ragnar Aðalsteinsson, verjandi fjögurra sakborninga, mun gera kröfur um að Lára [...]

Úr dómssalnum 15. september

Í dag fór fram fyrirtaka í máli ákæruvaldsins gegn nímenningunum. Einungis var um uppkvaðningu úrskurðs að ræða, en Pétur Guðgeirsson dómari synjaði kröfu sem fjórir sakborninganna gerðu um að settur saksóknari, Lára V. Júlíusdóttir, viki sæti og málinu þar með vísað frá. Fyrir viku síðan, hinn 8. september fór fram málflutningur um kröfuna og minntist [...]

Óviljaverk eða refsivert ofbeldi?

Síðustu daga hafa eftirfarandi myndband gengið um netheima. Myndirnar segja meira en mörg orð. Myndbandið var upphaflega sýnt í Kastljósþætti Ríkissjónvarpsins, þann 20. maí sl. og má sjá það hér:

Fjölmiðlavaktin 15. september

Ef smellt er á dálkinn hér að ofan, sem nefndur er Fjölmiðlavaktin, má finna samantek á umfjöllun meginstraums og alternatívra fjölmiðla um dómsmálið. Nú var að bætast inn áhugaverð samantekt á umfjöllun gærdagsins, þar sem enn einu sinni gerðist það að fjölmiðlafólk dæmdi nímenningana fyrirfram – meðvitað eða ómeðvitað – með lélegri fréttamennsku. Fyrirfram dómarnir [...]

Ráðherrar og níumenningarnir

Greinin birtist í Fréttablaðinu, laugardaginn 18. september 2010. Alþingi Íslendinga, stofnunin sem fær falleinkunn í nýlegri skýrslu þingmannanefndar, átti frumkvæði að sakamáli sem nú er rekið gegn níu manns fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Í fjölmiðlum er yfirleitt vísað til þeirra sem “mótmælenda” og látið að því liggja að hin ákærðu séu einsleitur hópur, sérstaklega hættuleg manngerð. [...]

Nímenningar í þingræðum

Í þingsumræðum um landsdóm og ráðherraábyrgð, þann 20. september síðastliðinn, bar Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Hreyfingarinnar, saman annars vegar hugsanleg réttarhöld yfir fjórum fyrrum ráðherrum ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar, og hins vegar nímenningana sem ákærðir eru fyrir árás á Alþingi. Í ræðunni sagði Birgitta meðal annars: Að draga fólk fyrir Landsdóm er orðalag sem heyrist mikið [...]

Óvissa um aðalmeðferð nímenningamálsins

Fyrirtökum í nímenningamálinu er nú lokið. Dómarinn hefur nokkrum sinnum hafnað kröfum nokkura sakborninganna um að málinu verði vísað frá og Hæstiréttur staðfest þá niðurstöðu í hvert skipti, án þess að taka afstöðu til greinagerða verjenda þeirra. Til stóð að aðalmeðferð málsins færi fram dagana 29. nóvember, 1. desember og 4. desember nk. frá 09:00 [...]

Ítarleg umfjöllun um dómsmálið og níumenningana í helgarblaði DV

Í nýjasta helgarblaði DV er ítarleg umfjöllun á tveimur opnum um ákærurnar gegn níumenningunum og dómsmálið. Hægt er að ná í pdf skrá af viðtalinu hér (því miður er galli í skjalinu sem veldur því að tvær myndir birtast ekki í preview forritinu á apple tölvum).

Samstaða í Sviss

Aðfaranótt fimmtudagsins 14. október var ráðist á íslensku ræðismannaskrifstofuna í Bern, Sviss. Lásinn að aðalhurð hússins var límdur aftur og spreyjað var á hurðina: “Free Rvk9!” – sem á íslensku myndi útleggjast sem „Frelsum Nímenningana!“ Upphaflega var frétt um árásina birt á ítölsku fréttaveitunni Culmine og þar fylgdi eftirfarandi texti: FUCK THE POLITICIANS AND THE [...]

Mjög mikilvæg frétt á Stöð 2

Þann 19. október sl. var fjallað um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 og sagt frá skjali sem Lára V. Júlíusdóttir, settur ríkissaksóknari lagði nýlega fram – eftir margítrekaða kröfu verjandans Ragnars Aðalsteinssonar þess efnis. Skjalið er samantekt Ríkislögreglustjóra á því sem eftir stendur eftir rannsókn málsins, einna helst byggt á upptökum úr eftirlitsmyndavélum Alþingis. Fréttin [...]

Upplýsingabæklingur á ensku og nýtt myndband

Í dag var glænýjum bæklingi um nímenningamálið dreift á Anarchist Bookfair í London (nánar um atburðinn hér). Við höfum sett pdf-útgáfu af honum hingað á síðuna svo hver sem er geti halað honum niður og dreift – útprentuðum eða í tölvuformi. Endilega hvetjið vini og kunningja erlendis til að gera slíkt. Til að sækja bæklinginn, [...]