RVK9

Ge9n: Trailer – Myndin sýnd í Bíó Paradís frá og með 9. september
Í morgun var trailer fyrir Ge9n, mynd Hauks Más Helgasonar um níumenningana, frumsýndur á Vísi og á vefsíðu SeND film tank, framleiðanda myndarinnar. Myndin verður sýnd í Bíó Paradís, Hverfisgötu 54, frá og með 9. september 2011.

Myndin var frumsýnd á heimildamyndahátíðinni Skjaldborg sem fram fór á Patreksfirði í byrjun júní. Í umfjöllun um hátíðina í tímaritinu Reykjavík Grapevine sagði Ásgeir H. Ingólfsson (á ensku – textinn hefur verið þýddur):

’Ge9n’ er heimildamynd um níumenningana (www.rvk9.org). Myndin olli klofningi meðal áhorfenda og leiddi til heitra umræðna – fái hún almennilega dreifingu gæti hún reynst tifandi tímasprengja. Þetta er ekki fullkomin kvikmynd, en afar áhugaverð og raunverulega frumleg. Ef nógu margir sjá hana gæti hún hreint átt eftir að breyta samfélaginu sem henni er ætlað að gagnrýna.

Hér er þá loksins trailerinn:

Ge9n trailer from SeND film tank on Vimeo.

Einnig er komið út veggpsjald fyrir myndina sem Fanney Sizemore gerði. Það má sjá hér að neðan.

Sjá einnig:

Vefsíða SeND film tank

Bíddu aðeins, bloggsíða Hauks Más Helgasonar, höfundar myndarinnar

Share/Bookmark

Ge9n – stikla úr væntanlegri mynd um níumenningana (eða af þeim…)
Tekið af Róstur.org og uppfært lítillega.

Fyrir ekki svo löngu var stikla úr væntanlegri kvikmynd Hauks Más Helgasonar, sem ber vinnuheitið Ge9n og verður frumsýnd á heimildamyndahátíðinni Skjaldborg sem fer fram 10.-12. júní nk., sett í dreifingu á internetinu. Stiklan var fyrst sýnd á málþinginu Guli borðinn sem fram fór í Bíó Paradís þann 3. maí og var einnig sýnd í sjónvarpsþættinum Silfri Egils. Haukur hefur sagt að myndin sé frekar af níumenningunum heldur en um þá, og útskýrði hvatann að myndinni í samtali við Róstur um daginn:

Myndina geri ég … tja, ætli það sé ekki vegna þess að þarna glittir í eitthvert pótentíal, einhvern möguleika, vilja til annars samfélags, í hugum hóps af fólki sem er skilgreint sem eitthvert mengi af ríkisvaldinu, með ákæru. Ákæran kallar eiginlega á að skoða hverjir þetta eru sem eru þannig skilgreindir sem óvinir, hvaða hugsanir það eru sem einhverjum einhvers staðar virðast finnast svona hættulegar – því frá upphafi blasti við að ekki var það „aðgerðin“ í Alþingishúsinu sem var svona ógvænleg.

Stiklan sýnir þátt Lárusar Páls Birgissonar sem Haukur kallar tíunda níumenninginn.

Ge9n – Þáttur Lalla from Haukur Már Helgason on Vimeo.

Share/Bookmark

Gegn stríði – útifundur á Lækjartorgi
Fimmtudaginn 14. apríl klukkan 17:00 verður útifundur á Lækjartorgi. Látum í ljós óánægju okkar!

Sökum aðildar Íslands að NATO erum við nú, á vormánuðum árið 2011, þáttakendur í þremur stríðum. Á þessu ári á nefnd á vegum ríkisstjórnarinnar að skila niðurstöðum um aðdraganda stuðnings Íslands við innrásina í Írak. Krafist er afléttingar leyndar skjala sem leiddu til stuðnings okkar við stríðið og að þau verði gerð opinber.

Krafa okkar fyrir þetta stríð er engu minni: Við krefjumst þess að öll gögn sem Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra og fulltrúar í utanríkismálanefnd Alþingis höfðu aðgang að og byggðu stuðning sinn við ályktun Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna á, verði þegar í stað gerð opinber.

Geðþóttaákvarðanir stjórnvalda eru brot á mannréttindum og því er áríðandi að almenningur geti lagt sjálfstætt mat á það hvort að nú líkt og áður hafi kjörnir fulltrúar byggt ákvörðun sína um stuðning við loftárásir á einkahagsmunum.

Mælendur verða:

Lárus Páll Birgisson

Sólveig Anna Jónsdóttir

Kristín Ómarsdóttir

María S. Gunnarsdóttir

Hvar: Lækjartorg

Hvenær: fimmtudaginn 14.apríl

Klukkan hvað: kl. 17:00

Share/Bookmark

Sýknað í hrákamálinu
Fimmtudaginn 7. apríl sl. voru þau Sunneva Ása Weisshappel og Snorri Páll Jónsson, einn níumenninganna, sýknuð af öllum ákæruliðum í hrákamálinu svokallaða.

Ítarlega greiningu á málinu, dómnum og nýlegum hliðstæðum málsins má lesa hér á vefritinu Róstur.

Share/Bookmark

Valtýr skammar fylgjendur meginreglunnar
Íslendingar losna brátt við Valtý Sigurðsson úr embætti Ríkissaksóknari. Í tilefni þess ræddi Valtýr um stöðu ákæruvaldsins á málstofu í Þjóðminjasafninu í gær en eins og kunnt er hefur hann staðið að mikilvægu uppbyggingarstarfi hér á landi allt frá því hann hóf rannsókn á Geirfinnsmálinu svokallaða.

Á fundinum í gær gagnrýndi Valtýr Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, og aðra stjórnmálamenn fyrir afskipti þeirra af ákæruvaldinu. Nefndi Valtýr sérstaklega tvö dæmi: Handtökur sérstaks saksóknara á útrásárvíkingum og mál níumenninganna. Sá hann sérstaklega að því að Jóhanna hafi fagnað handtökum útrásarvíkinga, sem og lýst yfir depurð vegna níumenningamálsins áður en afrýjufrestur ákæruvaldsins rann út í málinu; máli sem hann hannaði í samræmi við kröfur forsætisnefndar Alþingis — þeirri sem sat haustið 2008 — og hugðist þjóna yfirboðurum sínum af festu í því máli þangað til hann áttaði sig á eigin vanhæfni.

Orð Jóhönnu voru þó ekki einu afskipti stjórnmála- og áhrifamanna af máli níumenninganna. Í hennar hópi er ekki ómerkilegra fólk en Davíð Oddsson, Haraldur Johannessen, Ólafur Þ. Stephensen, Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, Helgi Bernódusson, Einar K. Guðfinnsson og Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir. Munurinn er bara sá að þau bera sömu tilfinningar til stöðu ákæruvaldsins og Valtýr.

Í sama erindi fordæmdi Valtýr orð Evu Joly um útrásarvíkinga og starfsmenn Ríkissaksóknara, sagði hana hafa brotið á meginreglu íslenska réttarríkisins: Að menn séu saklausir þar til sekt er sönnuð. Róstur vita lítið um hvort græninginn franski hafi brotið gegn þeirri reglu en ljóst er að þótt afskipti Jóhönnu af níumenningamálinu hafi fyrst og fremst verið glært og tilgerðarlegt tækifærismennskuspor í boði PR fulltrúa Samfylkingarinnar, voru þau í raun ekkert nema eftirfylgni meginreglunnar títtnefndu. Sem er eitthvað allt annað en fólst í orðum ákæruvaldsvinanna ofangreindu.

Share/Bookmark

Lára áfrýjar ekki!
Tekið af vefritinu Róstur.

Lára V. Júlíusdóttir, settur saksóknari í máli níumenninganna sem meðal annars voru ákærðir fyrir árás á Alþingi, hefur ákveðið að áfrýja ekki niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur frá 16. febrúar sl. Þetta kemur fram í bréfi sem hún sendi verjendum níumenninganna og Pétri Guðgeirssyni, héraðsdómara, í gær.

Pétur dæmdi, ásamt Arngrími Ísberg og Jóni Finnbjörnssyni, tvo af hinum níu sakborningum til skilorðsbundinnar fangelsisvistar og aðra tvo til greiðslu sektar. Þrír voru dæmdir fyrir brot gegn 106. grein almennra hegningarlaga hvað varðar brot gegn valdstjórninni; einn fyrir brot gegn 19. grein lögreglulaga hvað varðar óhlýðni við lögreglu.

Ragnar Aðalsteinsson, verjandi fjögurra níumenninganna og tveggja hinna dæmdu, sagði við Róstur að þessi niðurstaða sýndi fram á algjöra uppgjöf ákæruvaldsins og væri viðurkenning á því að ákæran hafi verið illa ígrunduð og án stuðnings í rannsóknargögnum.

Ekki er ljóst hvort einhverjir hinna fjögurra dæmdu muni áfrýja niðurstöðu héraðsdóms.

Share/Bookmark

„ …og þá voru eftir níu“ – Listamenn safna upp í sekt níumenninganna
Eftirfarandi frétt er tekinn af nýja vefritinu Róstur.

„ …og þá voru eftir níu“ er yfirskrift ljóða-, hljóma-, tal- og tónakvölds sem fram fer í Iðnó næsta föstudag. Markmiðið með kvöldinu er að safna því sem upp á vantar til að greiða þær fjársektir sem Héraðsdómur Reykjavíkur kom fyrir áherðum fjögurra níumenninganna, en samkvæmt dómnum ber þeim að borga verjendum sínum samtals 800 þúsund krónur auk þess sem tvö þeirra voru dæmd til 100 þúsund króna greiðslu í ríkissjóð hvort.

Fram koma hljómsveitirnar Súkkat og Bítladrengirnir blíðu (Tómas M. Tómasson, Magnús R. Einarsson og Eðvarð Lárusson); tónlistarmaðurinn Hörður Torfason; ljóðskáldin Kristín Eiríksdóttir, Ingibjörg Haraldsdóttir, Linda Vilhjálmsdóttir og Halla Gunnarsdóttir; Erlingur Gíslason leikari, Ragnar Aðalsteinsson hæstaréttarlögmaður, Stefán Pálsson sagnfræðingur og Jón Proppé listfræðingur.

Kynnir er Birna Þórðardóttir.

Húsið opnar kl. 19:30 og hefst dagskráin hálftíma síðar. Tekið verður á móti frjálsum framlögum og verði eitthvað í sjóðnum eftir að búið verður að greiða sektirnar mun sá peningur renna í sjóð sem stefnt er á að stofna til þess að styðja fjárhagslega það fólk sem hugsanlega lendir í sporum níumenninganna í komandi framtíð.

Share/Bookmark

Endurupptaka í máli flugvallarhlauparanna
Í dag fór fram fyrirtaka í máli íslenska ríkisins gegn Hauki Hilmarssyni og Jason Slade. Haukur og Jason voru upphaflega ákærðir fyrir að hlaupa inn á akstursbraut á Keflavíkurflugvelli en þeir vildu stöðva flugvél sem flytja átti kenýska flóttamanninn Paul Ramses til Ítalíu. Haukur og Jason voru dæmdir í héraðsdómi þann 15. febrúar 2010 fyrir húsbrot og almannahættubrot. Jason var dæmdur til eins og hálfs mánaðar fangelsisvistar, skilorðsbundið í þrjú ár. Haukur var dæmdur til tveggja mánaða óskilorðsbundinnar fangelsisvistar.

Í lok janúar þessa árs komst hæstiréttur að þeirri niðurstöðu að meðferð málsins fyrir héraði hafi verið í andstöðu við lög, úrskurðaði dóm Péturs Guðgeirssonar, héraðsdómara, ómerkan og vísaði málinu aftur í hérað til lögregrar meðferðar. Ástæða þess var að í ræðu saksóknara við aðalmeðferð málsins lagði ákæruvaldið til að dómarinn hefði til hliðsjónar önnur lagaákvæði en sagði um í ákæru málsins. Verjanda þeirra var því gert að flytja málið með þessum breytingum án nokkurs fyrirvara. Því var mótmælt á grundvelli 6. greinar Mannréttindasáttmála Evrópu sem segir að verjendur eigi rétt á nægum tíma og aðstöðu til að undirbúa vörn sína; og á 180. greinar laga um meðferð sakamála sem segir að ekki megi dæma sakborninga eftir öðrum lagaákvæðum en í ákæru greinir. Á þessum sama grundvelli krafðist verjandinn sýknu fyrir hæstarétti, sem ákvað hins vegar að gefa ákæruvaldinu möguleika á að fá mennina dæmda þótt ákæruvaldið sjálft hafi klúðrað aðalmeðferð málsins.

Málið er nú tekið fyrir, fimmtudaginn 10. mars 2011, í sal 203 í Héraðsdómi Reykjavíkur. Nýr dómari í málinu er Jón Finnbjörnsson. Mættir eru saksóknari, verjandi, túlkur og gestir.

13:40 – Dómþing sett af Jóni Finnbjörnssyni, dómara sem spyr hvort þurfi ekki að ræða dagsetningu aðalmeðferðar málsins, hvaða skýrslur þurfi að gefa við aðalmeðferðina og hverjir komi til með að gefa skýrslur. Ragnar Aðalsteinsson, verjandi Hauks og Jasons, segir að hvorugur skjólstæðinga sinna sé á landinu og ólíklegt sé að þeir komi til landsins á næstunni, líklega ekki fyrr en í fyrsta lagi næsta haust.

Dómari spyr þá hvort þörf sé á að leiða öll vitni fyrir dóminn aftur og segist Ragnar ekki hafa gert sér fulla grein fyrir því en telji það líklegt þar sem hann hafi auðvitað ekki spurt vitnin út í þau lagaákvæði sem saksóknari bætti inn í málið við flutning lokaræðu sinnar.

Dómari segir að miðað sé við að hinir ákærðu gefi aftur skýrslu og sömuleiðis öll vitnin. Sé einhverjar standard yfirlýsingar sé auðvitað bara hægt að leggja þær fram en Ragnar segir þá að öll vitni hafi verið spurð ítarlega við fyrstu aðalmeðferð málsins. Dómari jánkar því og segir lögin ekki gera ráð fyrir öðru en að ákærðu komi fyrir dóm við aðalmeðferð málsins, gefi ekki skýrslu í gegnum síma. Ragnar er sammála því.

Dómari segir það ekki ganga að fresta málinu fram á haust en Ragnar spyr þá hversu lengi málið sé búið að vera fyrir dómi nú þegar og gefur til kynna að nokkrir mánuðir til og frá séu smámunir í því samhengi. Dómarinn athugar gögn sín og kemst að því að sakborningarnir séu ákærðir fyrir atvik sem átti sér stað sumarið 2008.

Ragnar bendir á að nú sé árið 2011 og spyr dómari hvort það sé ekki einmitt enn frekari ástæða til að flýta málinu eins og unnt er. Ragnar segir þá að sölum lengdar málsins nú þegar  skipti líkast til ekki máli hvort aðalmeðferð málsins fari fram næsta haust eða jafnvel seinna. Hann efist um að skjólstæðingar sínir hafi fjárhagslegt bolmagn til að skjótast til landsins til þess eins að vera viðstaddir aðalmeðferðina. Dómari bendir þá á að þetta snúist ekki einungis um að þeir séu viðstaddir… og klára Ragnar setningu hans: Þeir þurfi jú að gefa skýrslu.

Ragnar spyr þá hvort það sé möguleiki á því að ákæruvaldið borgi ferðakostnað Jasons og Hauks og segist saksóknari að það verði skoðað. Dómari stingur upp á mánudeginum 16. maí fyrir aðalmeðferð málsins og spyr hversu langan tíma saksóknari og verjandi telji að aðalmeðferðin taki. Ragnar bendir á að þetta hafi verið gert í nokkrum áföngum á sínum tíma og spyr dómari þá hvort þetta muni taka heilan dag. Ragnar telur að það verði hátt í það. Þó nokkur vitni komi að beiðni ákæruvaldsins auk skjólstæðinga hans tveggja. En sé engin ástæða til að boða þá tvo hafi þeir ekki farareyri frá ríkinu.

Dómari segir bara þurfa að ákveða aðalmeðferð og láta það svo ráðast 16. maí hvort… og lengra kemst hann ekki. Ragnar spyr hvor ekki sé bókað að skjólstæðingar hans séu fjarverandi og verði líklega ekki á landinu fyrr en í fyrsta lagi í haust. Dómari lætur bóka það auk annarra praktískra atriða. Ragnar ítrekar þá að ákæruvaldið taki afstöðu til þess á hæfilegum tíma hvort borgað verði fyrir sakborningana ef taka eigi málið fyrir á næstunni. Dómari lætur bóka það og spyr hvort þar með sé ekki verkum dagsins lokið.

Dómþingi slitið og slegið í borð með hamri. Gert er ráð fyrir að aðalmeðferð málsins fari fram mánudaginn 16. maí kl. 09:30 í dómsal 101, Héraðsdómi Reykjavíkur.

Share/Bookmark

Fyrirtaka í máli ríkisins gegn Lalla sjúkraliða
Fyrirtaka í máli ríkisins gegn Lárusi Páli Birgissyni, betur þekktur sem Lalli sjúkraliða. Lárusi er gefið að sök að hafa óhlýðnast fyrirmælum lögreglu þann 4. nóvember sl. þegar hann neitaði að yfirgefa almannagangstétt við bandaríska sendiráðið á Laufásvegi 21-23. Er brotið talið varða við 19. grein lögrelgulaga.

09:15 – Arngrímur Ísberg, dómari setur dómþing og spyr Lárus hvort hann sé með greinagerð. Lárus segir að svo sé og dreifir greinagerð með kröfu sinni um að málinu verði vísað frá. Til vara eru gerðar ýmsar kröfur sem lúta að aðalmeðferð málsins. Dómari og saksóknari skoða pappírana undir þögn viðstaddra um stund – ekki nógu lengi til að geta hafa lesið alla skýrsluna. Dómarinn biður Lárus um að undirrita greinagerðina sem hann gerir. Dómari biður ritara um að bóka að greinagerðin sé gagn númer 5. í málinu.

Svo segist dómarinn hafa fundið ljósmynd á netinu og afhendir hana útprentaða til Lárusar og saksóknara (í ljós kemur að myndin er prentuð út af vefsíðunni www.rvk9.org). Dómarinn spyr  Lárus hvort hann sjái sjálfan sig á myndinni og svarar Lárus því játandi. Þá spyr dómari hvort myndin hafi verið tekin umrætt skipti, þann 4. nóvember sl., þegar Lárus var handtekinn, það atvik sem málið snýr að. Lárus segist ekki geta sagt til um það. Aðspurður hvort hann muni það ekki segir hann að það sé rétt auk þess sem hann hafi augljóslega ekki tekið þessa mynd sjálfur.

Dómarinn spyr þá hvort hann hafi samt sem áður staðið á svipuðum stað þann 4. nóvember sl. og segir Lárus að svo sé. Þá spyr dómarinn hvort saksóknari og Lárus geti fallist á að vegna ljósmyndarinnar megi sleppa því að fara í vettvangsgöngu að bandaríska sendiráðinu. Lárus samþykkir það. Ljósmyndin er þá bókuð sem gagn númer 6. í málinu.

Að því loknu spyr dómarinn hvort Lárus geti flutt frávísunarkröfuna munnlega en Lárus segist hafa staðið í þeirri trú að honum hafi einungis borið að skila inn greinagerðinni – hann sé ekki undirbúin fyrir munnlegan málflutning. Dómarinn samþykkir það.

Þá víkur hann að öðrum kröfum Lárusar en þeirri að málinu verði vísað frá og fullyrðir meðal annars að ekki verði komið til móts við kröfu Lárusar um að dómurinn verði fjölskipaður. Ekki verði heldur kallaðir til matsaðilar til að gera annars vegar geðrannsókn á Lárusi og hins vegar til að meta vettvanginn út frá öryggisatriðum – hvort aðgerðir lögreglunnar séu að einhverju leyti réttlætanlegar út frá öryggissjónarmiðum. Ekki muni heldur verða aflað afrita úr eftirlitsmyndavélum.

Lárus segist ætla að kæra það ef dómurinn hafnar þessum kröfum og vísar til þess að öll þessi atriði séu kæranleg til hæstaréttar. Dómarinn grípur stöðugt fram í fyrir Lárusi og segir hann ekki fara með rétt mál. Þeir karpa um stund og segist Lárus vera tilbúinn til að fara í veðmál um það að niðurstöðum um þessar kröfur séu kæranlegar til hæstaréttar samkvæmt lögum um meðferð sakamála. Dómarinn segir þá að margt af því sem Lárus krefjist hafi hann einfaldlega engan rétt til að krefjast, til að mynda kröfunni um fjölskipaðan dóm.

Á endanum snýr dómarinn sér að því að finna dagsetningar fyrir munnlegan málflutning frávísunarkröfunnar. Það gengur ekki betur en svo að 6. maí nk. verður fyrir valinu. Krafan verður tekin fyrir kl. 13:15 þann dag í sal 202. Eftir stutta stund segir dómarinn við saksóknara að þann 6. maí sé lagadagur og spyr hvort hún ætli sér að vera þar. Hún segist ekki hafa skráð það í dagbók sína og gerir því engar athugasemdir við dagsetninguna.

Þá spyr dómarinn Lárus hversu lengi hann ætli sér að tala og minnist á klukktíma langa fyrirtöku sem Lárus segir að sé líklega í lagi. Dómarinn fussar og segir það allt of langan tíma – Lárusi muni duga að tala í 10 mínútur. Saksóknarinn segist sjálf ekki ætla að tala lengur en í 5 eða 10 mínútur. Dómarinn slítur dómþingi og hleypur út.

Úfff!… heyrist meðal viðstaddra.

Sjá greinagerð Lárusar hér.

Share/Bookmark

Frávísunarkrafa Lárusar – Greinagerð ákærða
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu gegn Lárusi Páli Birgissyni.

Fyrirsvar:

Lárus Páll Birgisson

Kröfur:

Af hálfu ákærða er krafist:

1. að málinu verði vísað frá,

2. sýknu af öllum kröfum ákæruvaldsins,

3. að dómurinn verði fjölskipaður

4. að kallaður verði til hlutlaus matsaðili sem leggur mat á öryggi vettvangsins og aðgerðir

lögreglunnar með tilliti til öryggissjónarmiða,

5. afrits úr eftirlitsmyndavélum við Laufásveg umræddan dag,

6. að ákærði sæti geðrannsókn,

7. afdráttarlausrar afsökunarbeiðni af hendi lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu.

Málavextir:

Atvik þessa máls áttu sér stað þann 4. nóvember svo sem greint er í ákæru.  Var ákærði þá staddur á gangstétt fyrir framan Laufásveg 21-23 í Reykjavík og ástundaði stjórnarskrárbundinn rétt sinn til tjáningar og mælti fyrir friði öllum mönnum til handa.

Það gerði hann með hvatningunni “elskum friðinn” letraða með rauðum stöfum á gult spjald svo sem segir í lögregluskýrslu. Ákærði viðhafði engin hróp eða köll að starfsmönnum sendiráðsins og engin samskipti áttu sér stað á milli ákærða og starfsmanna sendiráðsins önnur en að ákærði bauð góðan daginn þegar hann kom á vettvang.

Sömmu síðar bar lögregluna að og fór hún inn í sendráðið og ræddi við starfsfólk þar.

Eftir stutta stund kom lögreglan aftur út og skipaði ákærða að færa sig yfir götuna.  Ákærði vildi ekki una þessum fyrirmælum enda stóða hann í þeirri trú að athæfi hans bryti í engu gegn þeim skyldum og skorðum sem gerðar eru til þeirra sem viðhafa tjáningu á almannafæri og tryggðar eru með lögum.  Ákærði útskýrði jafnframt fyrir lögregluþjónunum skilning sinn á réttindum borgaranna og bauðst til að sýna þeim afrit úr borgarvefsjá sem sýnir, svo ekki verður um villst, að ákærði stóð utan lóðamarka sendiráðsins á skilgreindu almannafæri.  Við þetta kom hik á lögregluþjónana og fóru þeir því aftur inn í lögreglubifreið sína og ráðfærðu sig við varðstjóra í gegnum talstöð.

Eftir stutt spjall við varðstjóra komu þeir aftur út og gáfu ákærða skipun um að færa sig yfir götuna með hótun um frelsissviptingu ella.  Ákærði ítrekaði fyrir þeim afstöðu sína til grundvallarréttinda borgaranna og þær skyldur sem lögregluþjónar bera til að verja þau réttindi.  Í kjölfarið var ákærði handtekinn mótþróalaust og færður upp á stöð.

Vettvangur:

Vettvangur hins meinta brots er almenn gangstétt sem liggur meðfram öllum Laufásveginum, nánar tiltekið fyrir framan hús númer 21-23 sem hýsir sendiráð Bandaríkjanna á Íslandi.  Vettvangurinn er opinn öllum enda er um almenna gangstétta að ræða, utan allra lóðamarka. (sjá útprentun úr borgarvefsjá)  Vikulega ganga tugir ef ekki hundruðir borgara þessa leið til og frá vinnu eða skóla.

Engin merki, skilti eða önnur leiðbeiningartákn er þar að finna sem gefa til kynna að um sé að ræða lokað svæði.  Ennfremur eru engin merki, skilti eða önnur leiðbeiningartákn sem gefa til kynna að viðkomandi sé að fara inn á öryggissvæði.  Engin hlið, girðingar eða sambærilegar tálmanir eru til staðar sem gefa til kynna að um sé að ræða lokað svæði, öryggissvæði eða einkalóð.  Gangstéttin er sambærileg öllum öðrum opnum og almennum gangstéttum í Reykjavík og sker sig á engan hátt úr hvað það varðar.

Röksemdir fyrir frávísunarkröfu:

Ákærði byggir kröfu um frávísun á þeim forsendum að fyrirmæli lögreglu sem og handtakan sem fylgdi í kjölfarið hafi í alla staði verið óþörf, tilgangslaus og uppfylli ekki þau lagaskilyrði sem þurfa að vera fyrir hendi til að réttlæta frelsissviptingu.

Fyrsta málsgrein 67. greinar Stjórnarskrár Lýðveldisins Íslands kveður á um að engan megi svipta frelsi nema samkvæmt heimild í lögum.  Heimildir til handtöku er að finna í 16. grein lögreglulaga (nr 90/1996) en þar segir:

„16. gr. Heimild til handtöku.

1. Handhafa lögregluvalds er heimilt að handtaka mann og færa á lögreglustöð eða á annan stað þar sem lögregla hefur aðstöðu:

a. í þeim tilgangi að halda uppi lögum og reglu, svo sem ef maður ærist á almannafæri eða veldur þar hneyksli eða hættu á óspektum,

b. ef hann hefur hér ekki landvistarleyfi,

[c. ef hann á að afplána refsingu,

d. ef hann hefur leyfislaust vikið úr fangelsi,

e. ef rökstuddur grunur leikur á að hann hafi rofið í verulegum atriðum skilyrði sem honum hafa verið sett í skilorðsbundnum dóm, reynslulausn eða náðun.]1)

2. Lögregla skal gera manni grein fyrir ástæðum þess að hann er færður á starfsstöð lögreglu. Ekki má halda manni lengur en nauðsyn ber til.“

Samkvæmt lýsingu lögregluskýrslu af atvikum er ekki hægt að sjá að ákærði hafi í neinu atriði uppfyllt þau skilyrði sem þurfa að vera til staðar til að réttlæta handtöku.  Ljóst er að liðir 1B-1E eiga ekki við um ákærða.  Eftir stendur þá liður A sem veitir lögreglu almennar heimildir til handtöku „í þeim tilgangi að halda uppi lögum og reglu, svo sem ef maður ærist á almannafæri eða veldur þar hneyksli eða hættu á óspektum,“

Í gögnum ákæruvaldsins er ekkert að finna sem gefur til kynna að ákærði hafi með einhverju móti brotið lög eða reglur sem réttlæta afskipti lögreglu, valdið hneyksli eða hættu á óspektum eða með nokkru öðru móti ógnað öryggi eða allsherjarreglum samfélagsins.

Í ljósi þess að ákærði framdi engin afbrot, tilraun til afbrots eða skapaði á nokkurn hátt hættu eða hneyksli með athæfi sínu verður að telja sem svo að lögregla hafi farið út fyrir valdsvið sitt með óþörfum og tilgangslausum fyrirmælum annars vegar og ólögmætri handtöku hins vegar.

Í ljósi þessa er ekki hægt að sjá að ákærði hafi gerst brotlegur við 19. grein lögreglulaga nr.90/1996 vegna þeirra fyrirvara sem gerðir eru til lögmætra fyrirmæla lögreglu en 19. greinin hljóðar svo:

“19. gr. Skylda til að hlýða fyrirmælum lögreglu.

Almenningi er skylt að hlýða fyrirmælum sem lögreglan gefur, svo sem vegna umferðarstjórnar eða til þess að halda uppi lögum og reglu á almannafæri.“

19. greinin leggur vissulega þær skyldur á fólk að hlýða þeim fyrirmælum sem lögreglan gefur svo hún geti sinnt lögbundnu hlutverki sínu, “svo sem vegna umferðarstjórnar eða til þess að halda uppi lögum og reglu á almannafæri.“

Ekkert kemur hins vegar fram í ákæru eða lögregluskýrslum að með athæfi sínu hafi ákærði truflað eða tálmað lögreglu við lögbundin skyldustörf.  Engin sýnileg ástæða virðist vera fyrir nærveru og fyrirmælum lögreglunnar önnur en sú að ákærði viðhafði tjáningu á almannafæri.

Ennfremur segir í 4. mgr. 15.gr. lögreglulaga:

„4. Óhlýðnist maður fyrirmælum lögreglu [skv. 2. og 3. mgr.]1) getur hún gripið til nauðsynlegra ráðstafana á hans kostnað til að koma í veg fyrir að óhlýðni hans valdi tjóni eða stofni almenningi í hættu.“

Nú hefur ákæruvaldið ekki sýnt fram á að ákærði uppfylli í neinu þau skilyrði sem hér eru gefin fyrir handtöku vegna óhlýðni enda er ekkert í málsskjölum ákæruvaldsins sem gefur til kynna að óhlýðni hans hefði getað valdið tjóni eða stofnað almenningi í hættu.  Ennfremur er ekki hægt að sjá að ákærði hafi uppfyllt þau skilyrði sem getið er um í 2. og 3. mgr. 15.gr. lögreglulaga nr.90/1996.

Af hálfu ákærða virðast forsendur handtökunnar því einungis vera neitun ákærða til að framfylgja þeim ólögmætu og tilgangslausu fyrirmælum sem lögreglan gaf.

Það er skilningur ákærða að með fyrirmælum sínum hafi lögreglan brotið gróflega gegn stjórnarskrárvörðum rétti hans til friðsamrar tjáningar á almannafæri og því beri að vísa málinu frá ellegar sýkna ákærða af öllum kröfum ákæruvaldsins.

Röksemdir fyrir sýknukröfu:

Ákærði í málinu er einlægur friðarsinni og hefur sterka sannfæringu fyrir því að stríð og annað ofbeldi sé ekki og geti ekki verið réttlætanlegt til að ná fram pólitískum markmiðum sínum eða í samskiptum manna almennt.  Í hartnær áratug hefur ákærði margsinnis tekið sér stöðu víðsvegar um borgina og andmælt hernaði eða hvatt til friðar og kærleika, þó sér í lagi fyrir utan opinberar byggingar er hýsa stofnanir sem með einhverjum hætti taka þátt í, styðja eða samþykkja hernað og ofbeldi gegn öðru fólki.

Ákærði trúir því að allir menn séu skapaðir jafnir og séu bræður og systur hvors annars og beri að auðsýna hvort öðru kærleika og virðingu.

Þar af leiðir sú trú og sannfæring ákærða að það sé hverjum manni ljúft og skylt að reyna eftir fremsta megni að stöðva hverskyns óhæfuverk sem framin eru gegn bræðrum hans og systrum og halda uppi stöðugu og öflugu andófi gegn illsku þeirra sem beita aðra ofbeldi til að ná fram pólitískum markmiðum sínum.  Ekkert í trú ákærða gefur honum þó rétt til að beita menn ofbeldi til að ná fram þessum markmiðum.

Réttur ákærða til þesskonar trúar og iðkun hennar með friðsamri tjáningu er að sönnu tryggður með ýmsum lögum er snúa að almennum mannréttindum, til að mynda í:

18. og 19. gr. Mannréttindayfirlýsingu Sameinuðu Þjóðanna,

9. og 10. gr. Laga um mannréttindasáttmála Evrópu,

18. og 19. gr. Alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi

63. og 73.gr Stjórnarskrár Lýðveldisins Íslands

Réttur manna til fjálsrar tjáningar er ein af grunnstoðum réttarríkisins og er varinn með alþjóðalögum og Stjórnarskrá Lýðveldisins.  Ákærði er meðvitaður um þessi réttindi og jafnframt þær skyldur sem á honum hvíla þegar hann iðkar þessi réttindi.

Það er jafnframt einlæg sannfæring ákærða að það sé hverjum manni skylt að standa vörð um þessi réttindi.

Í 4.mgr, 66.greinar Stjórnarskrárinnar er kveðið á um að allir skulu vera frjálsir ferða sinna með þeim takmörkunum sem eru settar með lögum.  Þó er ekki hægt að sjá í málsskjölum saksóknara að ákærði hafi í neinu brotið lög sem réttlæta takmarkanir umferðarfrelsis hans um svæði sem sannarlega er opið almenningi eins og á við um umrædda gangstétt.

Ákærði telur jafnfram að ákæruvaldið hafi brugðist skyldum sínum og brotið lög við rannsókn málsins, að því gefnu að rannsókn hafi yfir höfuð farið fram.  Í 3.mgr, 18.gr laga um meðferð sakamála eru lagðar þær skyldur á ákæruvaldið að það skuli “vinna að því að hið sanna og rétta komi í ljós og gæta jafnt að þeim atriðum sem horfa til sýknu og sektar.”

Í frumskýrslu lögreglu segir orðrétt:  „HPS-0775 ræddi við starfsmenn sendiráðsins og sögðu þeir að Lárus væri innan öryggissvæðis sendiráðsins og bæri að yfirgefa það svæði.“

Af málsskjölum að dæma er ekki annað hægt að sjá en að lögreglan hafi eingöngu orð starfsmanna sendiráðsins fyrir því að viðkomandi svæði sé þeirra öryggissvæði.  Ekkert í málsskjölum saksóknara bendir hins vegar til þess að þetta sé rétt. Ef sannarlega væri um öryggissvæði að ræða þá væri svæðið girt af með áberandi skiltum sem gefa til kynna að um lokað svæði sé ræða rétt eins og önnur öryggissvæði í Reykjavík, samanber flugvallarsvæðið og afgirt öryggissvæði við Reykjavíkurhöfn.  Slíkar vísbendingar er þó hvergi að finna við umrædda gangstétt enda getur hver frjáls maður gengið þar um að vild óáreittur.

Í lögregluskýrlu kemur fram að tilkynning hafi borist frá fjarskiptamiðstöð ríkislögreglustjóra “vegna manns sem þar stæði fyrir utan og væri að angra starfsmenn sendiráðsins.”

Ekkert kemur hinsvegar fram í málsskölum ákæruvaldsins með hvaða hætti ákærði á að hafa“angrað” starfsmenn sendiráðsins annað en að ákærði stóð á gangstétt með spjald sem á stóð “elskum friðinn.”  Ákærða þykir því sýnt að starfsmenn sendiráðsins hafi kallað lögregluna út í erindisleysu.

Fjöldi öryggismyndavéla beindust að ákærða allan þann tíma sem hann stóð þarna og því er undarlegt að afrit úr þeim öryggismyndavélum skuli ekki fylgja með í gögnum ákæruvaldsins.  Ákærði telur það bera vitni um áhugaleysi ákæruvaldsins í að hið sanna og rétta komi í ljós enda hefðu þær upptökur upplýst allar hliðar málsins.

Telur ákærði að ákæruvaldið hafi í engu leitað sannleikans við rannsókn þessa máls og með öllu hundsað lög og reglur um almenn mennréttindi er lúta að tjáningar og ferðafrelsi sem og annarra atriða er leitt gætu til sýknu ákærða.

Því er það krafa ákærða að hann skuli sýknaður af öllum kröfum ákæruvaldsins og fái formlega afsökunarbeiðni af hendi lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu fyrir þann miska og óhagræði sem ákærði hefur mátt þola af málatilbúnaði þessum.

Röksemdir fyrir fjölskipaðan dóm:

Með vísan í 3.og 5. málsgr. 3.greinar laga um meðferð sakamála nr. 88/2008 gerir ákærði kröfu um að dómurinn verði fjölskipaður.

Þar sem vörn ákærða byggir fyrst og fremst á túlkun laga er snúa að grundvallar mannréttindum borgaranna í formi tjáninga, ferða- og trúfrelsis ásamt efasemdum um lögmæti aðgerða lögreglunnar þykir ákærða sýnt að ríkir hagsmunir eru í húfi frá almennu sjónarmiði.  Almenn mannréttindi eru forsenda réttarríkisins.  Allar tálmanir eða skerðing á lögbundnum réttindum almennings ber að taka alvarlega og skoða hlutlaust í hverju tilfelli fyrir sig.

Ísland er aðili að alþjóðlegum sáttmálum sem fjalla um réttindi fólks til tjáningar og trúfrelsis og rík skylda er lögð á stjórnvöld að verja þessi réttindi.

Þó svo þetta tiltekna mál láti lítið yfir sér og virðist smátt í sniðum þá snýst það samt sem áður um gríðarlega mikilvæga hagsmuni.  Annarsvegar um réttindi almennings til friðsamrar tjáningar, með þeim takmörkunum sem kveðið er á um í lögum, og hinsvegar um meintan rétt lögregluvaldsins til að skerða þau réttindi.

Þykir ákærða því sýnt að fjölskipaður dómur eigi vel við í máli þessu.

Röksemdir fyrir matsgerð um öryggi svæðisins:

Ákærði gerir þá kröfu að kallaður verði til sérfræðingur á sviði öryggismála til að gera úttekt á svæðinu við Laufásveg 21-23 með tilliti til öryggissjónarmiða.  Þar sem líklegt er að ákæruvaldið muni beita fyrir sig öryggissjónarmiðum til að réttlæta aðgerðir lögreglunnar telur ákærði nauðsynlegt að fá úr því skorið af óháðum aðila hvort fyrirmæli lögreglunnar geti á einhvern hátt talist eðlileg eða ásættanleg leið til að tryggja öryggi vettvangsins.

Komi í ljós að fyrirmæli lögreglunnar, að ákærði færði sig yfir götuna, auka á engan hátt öryggi sendiráðsins og eru tilgangslaus út frá öryggissjónarmiðum þá teljast aðgerðir lögreglunnar óþarfar og tilgangslausar með öllu og til þess eins að hindra lögmæta tjáningu ákærða.  Ákærði stingur upp á að sprengjusérfræðingur Landhelgisgæslunnar eða annar aðili með sambærilega þekkingu verði fenginn til að þessarar matsgerðar.

Krafa um geðrannsókn:

Í ljósi þess að ákærði sýnir enga iðrun eða eftirsjá af athæfi sínu, ásamt því að hann virðist ekki upplifa neikvæðar afleiðingar gjörða sinna, telur verjandi tilefni til þess að ákærði sæti geðrannsókn til að úrskurða um sakhæfi hans.  Forsendur sakfellingar liggja meðal annars í því að sakborningur skilji muninn á réttu og röngu.

Ef saksóknari og dómari fallast á að ákærði kunni skil á réttu og röngu og hafi vit til að greina þar á milli er verjandi tilbúinn að falla frá kröfu þessari.

Sönnunargögn og vitni:

Ákærði leggur að svo stöddu fram greinargerð þessa ásamt útprentun úr borgarvefsjá sem sýnir lóðamörk við Laufásveg 21-23.  Ennfremur óskar ákærði eftir því að eftirtaldir verði leiddir sem vitni í málinu komi fram efasemdir um sannleiksgildi þessarar greinargerðar:

Luis E Arreaga, sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi en hann hefur tjáð sig opinberlega um málið.

Marco Fernandez, Regional Security Officer (RSO), starfsmaður sendiráðsins.

Yfirmaður Surveillance Detection Units (SDU), starfsmaður sendiráðsins, nafn óþekkt.

Stefán Eiríksson, Lögreglustjóri höfuðborgarsvæðissins.

Geir Jón Þórisson, Yfirlögregluþjónn.

Ásgeir Karlsson, yfirmaður Greiningardeildar Ríkislögreglustjóra.

Kjartan Páll Sæmundsson, lögregluþjónn nr 0728.

Lögregluþjónn HPS-0773.

Varðstjóri ÞAE-0129.

Gerist þess þörf er ákærði jafnframt tilbúinn að leiða fram hóp lögreglumanna sem geta vottað að ákærði hefur á andófsferli sínum iðulega sýnt drengskap og fyllstu kurteisi í samskiptum sínum við lögregluþjóna efist dómari um virðingu ákærða fyrir lögreglunni.

Lög og tilvísanaskrá.

Að svo stöddu leggur ákærði til grundvallar varna og málfluttnings eftirtalin lagaákvæði:

Stjórnarskrá Lýðveldisins Íslands:

21.gr, 63.gr, 65.gr, 70.gr, 73.gr, 74.gr.

Lögreglulög nr. 90/1996:

1.gr, 13.gr, 14.gr, 15.gr, 16.gr, 19.gr, 29.gr.

Almenn hegningarlög nr. 19/1940:

13.gr, 70.gr, 74.gr.

Mannréttindayfirlýsingu Sameinuðu Þjóðannna:

1.gr, 2gr, 11gr, 13gr, 18gr, 19gr, 28gr, 29gr, 30.gr.

Lög um mannréttindasáttmála Evrópu:

5.gr, 6.gr, 9.gr, 10.gr, 11.gr.

Alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi:

9.gr, 12.gr, 14.gr, 18.gr, 19.gr, 20.gr, 21.gr.

Ákærði óskar jafnframt eftir leiðsögn dómara um tilvísanir í dómafordæmi sambærilegra mála þar sem lögreglan hefur brotið á réttindum andófsfólks svo sem dómsmál um aðgerðir lögreglu gegn Falun Gong við heimsókn Kínaforseta, ólögmæta handtöku mótmælenda á Austurvelli við upptöku sjónvarpsþáttarins Good Morning America og allra annarra dóma sem fallið hafa gegn lögreglunni í tengslum við mótmæli, andóf og aðra lögmæta tjáningu á almannafæri.

Jafnframt óskar ákærði eftir leiðbeiningum frá dómara ef einhverjir vankantar eru á greinargerð þessari og tíma til að leiðrétta þau mistök eða bæta það sem upp á vantar.

Share/Bookmark