Skip to content

Myndbönd

Hér má sjá ýmis myndbönd sem tengjast nímenningamálinu. Ef þú lumar á myndbandi sem ekki hefur verið birt hér en á heima hérna, endilega hafðu samband við aðstandendur síðunnar í gegnum tölvupóstinn rvk9.org@gmail.com.
________________________________________________________________________________

Kastljós, 20. maí 2010: Mál nímenninganna. Ítarleg fréttaskýring, viðtal við tvö hinna ákærðu, myndbrot úr eftirlitsmyndavélum Alþingis og fleira til.

Kvöldfréttir RÚV, 20. maí 2010: Stutt frétt um misræmi í lýsingum þingvarðar annars vegar og myndbandsupptökum hins vegar.

London Anarchist Bookfair 2010: Stuðningsmaður nímenninganna kynnir málið á Anarchist Bookfair í London, október sl.

Óviljaverk eða refsivert ofbeldi?: Samanburður á myndbandsupptökum eftirlitsvéla Alþingis annars vegar og lýsingum þingvarðar og ákæruliðum hins vegar.

Kvöldfréttir RÚV, 8. desember 2008: Umfjöllun Ríkissjónvarpsins um atburðinn sem leiddi til dómsmálsins, þegar 30 manns fóru inn í þinghúsið þann 8. desember 2008 en var neitað um að fá að fara upp á þingpallana. Sjö voru handteknir en seinna meira voru níu manns ákærðir, m.e. fyrir brot á 100. grein hegningarlaga. Brot á þeirri grein varðar við fangelsisvist einhvers staðar á milli eins árs til lífstíðar fangelsis.

Óvanalegt ástand í héraðsdómi: Myndband frá fyrirtöku í málinu þann 12. maí sl. þar sem fjöldi lögreglumanna stjórnaði réttarhöldunum með harðri hendi og nokkrir hinna fjölmörgu stuðningsmanna nímenninganna voru handteknir.

Skríllinn gegn ákæruvaldinu!: Frá samstöðuatburði sem haldinn var í Nýlistasafninu í Reykjavík, þann 3. júlí 2010. Fram komu margir þekktir og minna þekktir listamenn.

Tvö ár frá atburðinum sem leiddi til dómsmálsins: Þann 8. desember 2010 fóru fram samstöðumótmæli við þinghúsið og á þingpöllunum í tilefni þess að tvö ár voru liðin síðan nímenningarnirfóru ásamt 20 öðrum inn í þinghúsið og huguðst fara upp á þingpallana, en voru stöðvarðir af þingvörðum og lögreglu og haldið í stigapalli þinghússins, fóru í dag fram mótmæli á þingpöllum Alþingis sem og fyrir utan þinghúsið.

Kvöldfréttir Stöðvar 2, 22. desember 2010: Einar Steingrímsson stærðfræðingur færði Ögmundi Jónassyni dóms- og mannréttindaráðherra áskorun þúsund manns um að ráðherrann beiti sér fyrir því að málssóknin á hendur nímenningunum verði felld niður. Einar benti á að þau níu væru ákærð fyrir glæp sem aldrei var framinn og að málssóknin sé árás á frelsi almennings til mótmæla.

Ræða Sólveigar Önnu Jónsdóttur: Ræða einnar nímenninganna á tónleikunum Vorkomu sem fram fóru til stuðnings nímenningunum á Austurvelli þann 15. maí 2010. Þar komu m.a. fram Páll Óskar, Hjaltalín, Hjálmar, KK og Ellen ásamt fleirum.

Ræða Vilborgar Dagbjartsdóttur: Ræða Vilborgar frá því á ofangreindum Vorkomutónleikunum, 15. maí 2010.

Kastljós, 12. janúar 2011: Ellen Kristjánsdóttir og dætur hennar þrjár komu fram í Kastljósi Ríkissjónvarpsins, miðvikudagskvöldið 12. janúar 2011, til að kynna stuðningstónleika sem fóru fram á NASA, fimmtudaginn 13. janúar.