Skip to content

Réttarhöld

Vitnaleiðslur hefjast

og réttarhöldin fara mjög rólega af stað. Klukkan hálf níu er “vettvangsferð” í Alþingishúsið sem tekur skjótt yfir – enda ekki mikið að sjá! Klukkan níu er er hópur fólks mættur – nánustu fjölksyldumeðlimir hinna ákærðu og aðstandendur. Hópur stuðningsmanna er fyrir utan héraðsdóm og aðrir á kaffihúsum handan Aðalstrætis. Fólki er hleypt inn í [...]

Jón Benedikt Hólm

[Sækjandi, Lára]: Ég byrja á að spyrja um tilgang? [J]: Ég ætlaði að gleðja þingmennina, þeir voru svo daprir [L]: Hvar varstu þegar þú tókst ákvörðun? [J]: Niðri í bæ [L]: Hafðirðu heyrt af þessu fyrir? [J]: Nei, ekkert sérstaklega [L]: Varstu í hópi eða einn? [J]: Ég var bara einn. [L]: Var fyrirfram búið [...]

Kolbeinn Aðalsteinsson:

[Lára]: hver var tilgangurinn? [Kolbeinn]: reyna að koma sjónarmiðum sínum á framfæri, láta í sér heyra [L]: Var tilgangurinn að trufla störf? [K]: Það má kannski kalla það, sá valmöguleiki var allavegana opinn, að það gæti orðið röskun á störfum þings, maður gerir ser grein fyrirþví [L]: Hvernig tókstu ákvörðun? [K]: Helst vil ég ekkert [...]

Snorri Páll

[Lára]: Mig langar að spyrja hver var tilgangurinn með að fara inn? [S]: Kýs að svara ekki [L]: Hvar varstu? [S]: Kýs að svara ekki [L]: Tókstu ákvörðun einn, eða var fundur eða hópur fólks? [S]: Kýs að svara ekki [L]: Var fyrirfram búið að skipuleggja þegar í húsið væri komið? [S]: Kýs að svara [...]

Sólveig Anna

[L]: Hvar tókstu ákvörðunina? [SA]: Eg svara bara fyrir mig og ég tók ákvörðunina ein [L]: Var af þinu mati truflun? [SA]: Kýs að svara ekki Sömuleiðis aðrar spurningar Láru um skipulag eða að það hafi verið búið að ákveða eða skipuleggja eða að um samantekin ráð hafi verið að ræða. [L]: Hver var í forystu? [SA]: Það var [...]

Teitur Ársælsson

[Lára]: Hver var tilgangurinn með að fara í alþingishúsið? [T]: Bara að mótmæla [L]: Með hvaða hætti voru þessi mótmæli – var tilgangurinn að trufla störf? [T]: Nei – það var enginn tilgangur að gera neitt [L]: Hvar varstu þegar þú tókst þessa ákvörðun? [T]: Kýs að svara ekki [L]: Var haldinn fundur til að [...]

Steinunn Gunnlaugsdóttir

kýs að svara ekki spurningum Láru – “ég kýs að svara ekki” er svar hennar við öllum spurningunum.   Þegar Lára spyr út í þennan meinta fund segir Steinunn að það komi Láru eða öðrum viðstöddum ekkert við hvað hún gerir í frístundum sínum. Hún segist ekki heldur þekkja sjálfa sig á myndbandinu. Lára kemst hvorki lönd [...]

Andri Leó

var næstur í “vitnastúkuna”. Saksóknari, Lára spyr (S): Hver var tilgangurinn með heimsókninni? Andri: Ég tjái mig ekkert um það, frekar en þær þúsundir sem voru á Austurvelli þess dagana [S]: Hvar varstu þegar þú tókst ákvörðun um að taka þátt? Andri: Ég ákvað að hlusta á ræður á Austurvelli. [S]: Manstu eftir fundi sem [...]

Þór Sigurðsson

er síðasti sakborningurinn til að vera kallaður fyrir. Lára byrjar líkt og í fyrri yfirheyrslum sínum og spyr: Hver var tilgangurinn? Þór tekur svipaða afstöðu og flestir fyrri sakborningar og neitar að svara spurningum: “Ég ætla ekkert að tjá mig um það” – Þór svarar flestum öðrum spurningum Láru með sama hætti. Þegar hann er [...]

Hádegishlé!

Þar sem búið er að ljúka vitnaleiðslum yfir sakborningunum fyrr en ráðgert var ákveður dómari að reyna að grynnka á vitnalista morgundagsins eftir hádegi og biður Láru að reyna að ná í þá sem hægt er að ná í, og kalla þá fyrir eftir hádegi. Hann biður svo sækjanda og verjendur að koma sér saman um [...]

Vitni: Steinar Kr. Sigurðsson – þingvörður

Vitnaleiðslur og réttarhöldin hefjast að nýju eftir hádegishlé. Fólk streymir aftur inn í dómsalinn sem er þéttskipaður. Saksóknara og verjanda virðist hafa tekist að ná í fjölda vitna, því vitnaleiðslurnar munu halda áfram til hálf fjögur í dag. Fyrstur í “vitnastúku” er Steinar Kr. Sigurðsson: Steinar svarar spurningum verjenda: Varstu staddur í þinghúsinu í desember [...]

Vitni: Brynjar Nikulás Benediktsson – þingvörður

Næsta vitni er vitni saksóknara, Brynjar Nikulás Benediktsson þingvörður: Lára: Lýstu því fyrir okkur hvernig aðkoma þín var að atburðunum í desember 2008. [B]: Ég fæ neyðarkall í talstöðina um vandræði við gestainnganginn. Það sem blasir við mér er hávaði, hamagangur og fullt af fólki sem er að ryðjast inn. Það fyrsta sem mér dettur [...]

Vitni: Guðfinna Gísladóttir – þingvörður

Næsta vitni er Guðfinna Gísladóttir, þingvörður: Hún lýsir aðkomu sinni – segir að þarna hafi verið fullt af fólki, segir að farið hafi verið út í háreysti. Saksóknari: Gáfuð þið fólki einhver fyrirmæli? GG: Ég talaði eitthvað við þau, því ég trúði ekki mínum eigin augum, hvað þau voru að gera – ég reyni að [...]

Vitni: Guðlaugur Ágústsson – deildarstjóri í Alþingi

Næsta vitni er Guðlaugur Ágústsson – deildarstjóri í Alþingi – yfirmaður þingvarða. Saksóknari: Hver var aðkoma þín að atburðunum? GÁ: Ég var staddur í svokallaðri vaktstöð, ég tek eftir stórum hópi sem nálgast húsið og á sama tíma tek ég eftir að þrír einstaklingar eru komnir inn í andyrið – þá ræðst einn einstaklingur á [...]

Vitni: Kjartan Egilsson – þingvörður

Næsta vitni er Kjartan Egilsson, þingvörður Alþingis: Lára V.; Hver var aðkoma þín að þessu? [KE] Ég var á vakt uppi á gangi þegar ég heyrði læti. Kjartan segir þingverði hafa tekist hönd í hönd og lokað þannig fyrir að fólkið kæmist lengra. Troðningur og þrýstingur hafi verið mikill, vitnið tekur ekki undir með saksóknara að [...]

Vitni: Kristinn Pedersen – lögreglumaður Alþingis

Næstur er Kristinn Pedersen, lögreglumaður sem starfar í Alþingi: Lára V biður um lýsingu á aðkomu. Kristinn segist hafa verið staddur uppi á pöllum þegar hann heyrði kall í talstöð, sem síðan hafi verið rifin af honum. Hann hafi litið út um gluggann og séð að allir hafi verið með fyrir andlitinu. Þeir hafi ákveðið að [...]

Vitni: Maria Ditas – þingvörður

Næsta vitni er María Ditas, þingvörður. Lára V. Spyr Maríu um hlutverk hennar sem þingvarðar. María svarar því til að hlutverk hennar sé ,,að halda friði í þinginu”, fá fólk til að slökkva á símum, afhenda töskur og kynna reglur um heimsóknir á pallanna. Allt þetta þarf að gerast í anddyrinu þegar gestir koma á [...]

Vitni: Vilhjálmur Gunnar Jónsson – þingvörður

Næst er kallað vitni ákæruvaldsins, Vilhjálmur Gunnar Jónsson þingvörður. Lára V. spyr Vilhjálm um hlutverk hans sem þingvarðar, hvaða öryggisreglur gildi osfrv. Svör Vilhjálms eru á svipuðum nótum og svör fyrri þingvarða við þessum spurningum – að hlutverk þingvarða sé að taka við yfirhöfnum gesta, og biðja gesti um að slökkva á farsímum. Vilhjálmur segir þingverði [...]

Vitni: Þormóður Sveinsson – þingvörður

Næsta vitni er Þormóður Sveinsson, þingvörður og vitni ákæruvaldsins Lára V. spyr um hlutverk þingvarða. Þormóður svarar ,,að sjá til þess að þingfundir fari vel fram”. Hann segist ennfremur halda að venjulega sé 26 manns hleypt á áhorfendapalla Alþingis, og að hurð niðri sé alltaf læst. Þormóður segist hafa verið á ganginum uppi þegar hann [...]

Vitni: Vigdís Jónsdóttir – aðstoðar skrifstofustjóri

Næsta vitni er Vigdís Jónsdóttir, aðstoðarskrifstofustjóri Alþingis: Lára V. byrjar vitnaleiðsluna: Segðu okkur hvar þú varstu stödd þegar atburðarásin átti sér stað. Vigdís: Ég sat við hliðina á þingforseta inn í þingsal – þar sem ég aðstoða forseta hverju sinni. Lára: Varstu vör við hávaða? Vigdís: Ég varð ekki vör við hávaða fyrr en það kemur [...]

Vitni: Helgi Bernódusson

Síðasta vitni dagsins er Helgi Bernódusson skrifstofustjóri Alþingis, sem var kallaður til af verjanda ákæruvaldsins, Ragnari Aðalsteinssyni. Ragnar Aðalsteinsson: Var vitnið vitni af þessari heimsókn, líklega 30 manna? HB: Já, ég varð það óbeint. Ég sá ekki þessa einstaklinga, en ég varð var við komu þeirra í húsið. Ragnar: En þú sást ekki þessa atburði [...]

Réttarhaldinu

er lokið í dag. Búið er að henda inn hrárri uppskrift af síðustu vitnaleiðslunum – við erum að vinna í því að laga uppskriftirnar, stafsetningarvillur osfv! Þetta verður allt komið inn á næstu mínútum – við biðjum fólk að sýna þolinmæði! Mbk, ritstjórn Rvk9.org

Frágangi á lýsingum dagsins

er að verða lokið. Ritnefnd Rvk9.org er enn að prófarkalesa og þýða færslur, en nú ættu allar lýsingar á íslensku að vera komnar inn í endanlegri mynd (fyrir utan innsláttar og stafsetningarvillur sem við erum ennþá að laga). Sjö til níu manna ritnefnd, tæknideild og bloggsveit Rvk9.org verður svo aftur hér í fyrramálið, með áframhaldandi [...]

Dagur 2

Dómarar ganga í salinn og hluti gesta stendur upp. Sakborningar eru ekki allir viðstaddir. Vantar Þór, Andra og Teit, Snorra, Steinunni og Ragnheiði. Sólveig, Jón Benedikt og Kolbeinn eru mættir. Snorri og Steinunn eru þó á ganginum fyrir framan sal.

Fyrsta vitni dagsins

er Albert Örn Sigurðsson, lögreglumaður (AÖ). Albert Örn sest og tilkynnir lögreglunúmer sitt, 0529. Sækjandi, Lára, (L): Hvers vegna kom lögreglan að alþingi? AÖ: Ég var í lögreglubíl þegar kom tilkynning um að verið væri að ráðast inn í húsið. L: Hvernig var aðkoma þín að alþingi? AÖ: Var með öðrum manni í bílnum, fórum [...]

Vitni nr. 2

Eiríkur Valberg (EV), lögreglumaður, lögreglunúmer 0329. Lára (L): Lýstu fyrir dóminum aðkomu þinni að mótmælunum 8. desember 2008? EV: Ég var að vinna á lögreglustöðinni í Hafnarfirði þegar kallað var á liðsauka, og ég fer þangað ásamt fleiri mönnum, og þegar ég kem er búið að girða af öryggissvæði og mér var falið að halda lokuninni, [...]

Vitni nr. 3

Ellert Svavarsson (ES), lögreglumaður, 9122. Lára: Af hverju kom lögreglan að alþingishúsinu? ES: Hvað meinarðu? L: Hvers vegna kom hún? ES: Það var komið þarna óæskilegt fólk inn í húsið í óleyfi á þingpalla. L: Varstu með fyrstu mönnum á staðinn? ES: Fljótlega. L: Hvað gerðist þegar þú komst að austurinngangi? ES: Við fórum rakleitt [...]

Vitni nr. 4

Guðmundur Ingi Rúnarsson, lögreglumaður, nr. 0527 Lára: Geturðu lýst fyrir réttinum aðkomu þinni að mótmælunum? Guðmundur: Já, ég var uppi á lögreglustöð þegar boð bárust frá Alþingi. Lára: Hvers eðlis voru skilaboðin? Guðmundur: Þeir báðu bara um alla lögreglumenn sem þeir gátu fengið, það væri verið að ráðast inn á Alþingi. Lára: Hversu lengi voruð [...]

Vitni 5

Næsta vitni er Jens Gunnarsson, lögreglumaður nr. 0222. Lára: Hver var aðkoma þín að málinu? Jens: Við komum tveir, vorum kallaðir út, útaf þessum látum, þegar við komum var búið að setja upp borða og verið var að færa fólk út. Okkar starf var að halda þessu svæði lausu svo hægt væri að vinna fyrir [...]

Vitni nr. 6

Guðmundur Haukur Gunnarsson (GH), lögreglumaður, nr.  0505. L: Geturðu lýst í stuttu málið aðkomu þinni að húsinu? GH: Það var búið að loka alþingishúsinu, mig minnir að ég hafi komið að þessu mjög stuttlega, ég man þetta ekki mjög vel. L: Manstu eftir að hafa farið inn í húsið? G: Nei. L: Manstu eftir að [...]