Inn kemur Kristján Helgi Þráinsson, lögreglumaður, nr. 9804.Einhverjir viðstaddra blístra – líklega vegna þess að Kristján er hávaxinn, svipsterkur og dökkhærður . Kannski finnst einhverjum hann líka myndarlegur. Kristján er allavegana bæði stór og sterklegur og stendur út úr við öll mótmæli þar sem hann hefur stillt sér mjög valdsmannslega upp í fremstu víglínu. Kristján virðist [...]
Réttarhöld
Vitni nr. 8
Leifur Halldórsson, lögreglumaður, nr. 0136 Lára: Geturðu lýst aðkomu þinni? LH: Við vorum tveir staddir við Skólabrú 2 þegar barst kall um fjarskiptamiðstöð um að það þyrfti skjóta aðstoð, það tók okkur fáeinar sekúndur og við komum inn upp á palla í gegnum mannþröng upp stigann og aðstoðuðum lögreglu að koma fólki út, ég var [...]
Vitni nr. 9
Lúðvík Kristinsson – lögreglumaður. Lára segir að hún ætli ekki að kalla Lúðvík fyrir – vegna þess að hún sá seint að hann var ekki á staðnum [Rætt er um að of seint sé að hætta við vitnisburð hans þar sem hann var mættur og því fengu verjendur að spyrja hann ... innsk. ritstj.] [Kallað [...]
Vitni nr. 10
Stella Mjöll Aðalsteinsdóttir, lögreglukona, númer 9829. Lára V saksóknari (LV) byrjar að spyrja vitnið: LV: Hver var aðkoma þín? Stella (St): Við fengum tilkynningu, við vorum uppi á lögreglustöð, við fengum tilkynningu um árás, og fórum niðureftir, þar voru læti og hamagangur, við stöndum í tröppunum og fórum aldrei upp á pallana. Þar kemur niður [...]
Vitni 11
Svava Snæberg Hrafnkelsdóttir, lögreglukona, nr. 0738. L: Greindu frá aðkomu þinni að mótmælunum við alþingi 8. desember 2008. S: Ég var inni á skrifstofu aðalvarðstjóra á Hverfigötu, þá sjáum við að það er eitthvað að gerast í beinni útsendingu og við förum beint niðureftir til að kanna hvað væri að gerast – við urðum bara [...]
Vitni 12, 13 og 14
Magnús Böðvarsson, læknir (MB). L: Þú skoðaðir… þú ert trúnaðarlæknir Alþingis… skoðaðir þingverði. Þetta eru nokkrir aðilar, geturði lýst mati þínu á meiðslum Maríu Dítas MB: Ég skoðaði hana tólfta, fjórum dögum eftir atburðinn. Einn af mönnunum sem komu inn hafði opnað hurð og haldið henni fastri, og hún festist milli hurðar og veggjar og [...]
Vitni: Össur Skarphéðinsson
Ragnar: Össur varst þú í þingsal um kl.3 síðdegis hinn 8.desesmber 2008? Össur: Ég var þar. Ragnar: Var erfitt að halda þann þingfund? Össur: Mér þótti það ekki enda ýmsu vanur úr þingsölum. Ég sat þeim megin við galleríið að ég sá ekki upp en ég heyrði og við höfum heyrt meiri hávaða og verri [...]
Vitni: Einar Kristinn Guðfinnsson
Ragnar: Þú sast á alþingi í desember 2008? Einar K: Já. Ragnar: Varst þú á þingfundi þann 8.desember 2008? Einar K: Já, ég var það. Ragnar: Manstu eftir heimsókn á þingpalla sem að leiddu til þess að þingfundi var frestað um skeið? Einar K: Já, ég man eftir því [hann bætir við að hann hafi [...]
Vitnaleiðslur eftir hádegi – vitni nr 17
Pétur Sigurðsson (PS) er næsta vitni – kallaður fyrir af hálfu verjenda Verjandi: Þú fórst þarna inn í alþingishúsið 8. desember 2008? PS: Já, ég fór þarna inn óáreittur og þar var mikið af fólki fast í stiganum og lögreglumaður er að ota skósólanum að fólki og gera sig líklegan til að sparka í fólk. [...]
Vitni nr 18
13:25 – Sólveig (sakborningur) er kölluð fyrir af verjendum á meðan beðið er eftir næsta vitni Verjandi: Varðst þú þess vör að þingvörðurinn María læsti hurðinni út að stéttinni? Sólveig: Já, það sést vel á myndbandinu – hún lokar hurðinni og læsir og horfir á mig og segir ,,nú komist þið ekki út” ég man [...]
Síðasta vitni réttarhaldanna – nr. 19
Vitni – Lárus Páll Kl. 13:35 Verjandi: Hvert er starf þitt? LP: Ég er sjúkraliði Verjandi: Varstu í Alþingishúsinu þann 8. desember 2008? LP: Já ég var þar Verjandi: Hvar varstu? LP: Ég fór alla leið upp í tröppur, miðhæðina, 2. hæð. Verjandi: Hvert var erindið? LP: Ég taldi það skyldu mína að gera þessu [...]
Dagur 3
Lunacy Reykjavík, 20. janúar 2011. Undir fullu tungli hefst þriðji og jafnframt síðasti dagur réttarhaldanna yfir nímenningunum. Vitnaleiðslunum er lokið og aðeins er eftir málflutningur ákæruvaldsins og verjenda.
Málflutningur ákæruvaldsins – hluti 1
9:10 Gestum hleypt í salinn, sem fyllist fljótt. Það eru töluvert fleiri gestir viðstaddir í héraðsdómi en síðustu daga, og stór hópur þarf frá að hverfa. 9:14 Dómarar ganga í salinn og hluti gesta stendur upp. Svo virðist sem hluti áhorfenda sé þeirrar skoðunar að það þurfi að standa upp fyrir dómurum. Bréf frá skrifstofustjóra [...]
Málflutningur ákæruvaldsins – hluti 2
Allt varðar þetta við ýmsar greinar hegningarlaga, sérstaklega 100. grein hegningarlaga. [Dómarar teygja sig í lagabók í hálftómum bókaskáp sem er fyrir aftan þá (þessir bókaskápar hafa vakið athygli gesta – hálftómar bókahillur eru einhvernveginn hálf kjánalegar). Sennilega ætluðu dómararnir að fletta upp öllum þeim lagaákvæðum sem nímenningarnir eru ákærðir fyrir?] Lára heldur áfram að [...]
Málflutningur ákæruvaldsins – hluti 3
Sólveig á að hafa ýtt við þingvörðum og reynt að gera greiða leið að stiganum, haldið Guðfinnu og svo framvegis. Allt sést þetta á myndbandinu skv. Láru, þar sem Sólveig er með ,,ljósa prjónahúfu” og „appelsínugulan borða” [sem hún var ekki með, heldur rauðan – hver myndi vera með appelsínugulan borða við þessar aðstæður? Þeir [...]
Málflutningur ákæruvaldsins hluti 4
Lára vísar í 106 grein almennra hegningarlaga sem hljóðar svo: “Hver, sem ræðst með ofbeldi eða hótunum um ofbeldi á opinberan starfsmann, þegar hann er að gegna skyldustarfi sínu eða út af því, og eins hver sá, sem á sama hátt leitast við að hindra framkvæmd slíks starfa eða neyða starfsmanninn til þess að framkvæma [...]
Málflutningur ákæruvaldsins – hluti 5
Í 2. kafla Láru V. Júlíusdóttur var farið yfir þá meintu áverka sem Andri átti að hafa veitt þingvörðum og lögreglu. Hún bendir á, eins og áður hefur komið fram að Andra er gefið að hafa ráðist að lögregluþjónunum Alberti og Stellu. Lýsing Láru á þessari atburðarás lýsir því hvernig albert “greip í vinstri hönd [...]
Málflutningur ákæruvaldsins – hluti 6
Þriðji kafli ákæru: þar er Snorra Páli gefið að sök að hafa reynt að frelsa mann úr höndum lögreglumanns, atvik voru með þeim hætti að aðili sem verið var að vísa út úr húsinu er sagður hafa hrækt á lögreglumann og í kjölfarið fór lögreglumaður og vildi fá þennan mann með sér vegna athæfisins. Snorri [...]
Málflutningur ákæruvaldsins hluti 7
Næst fór Lára yfir refsikröfur ákæruvaldsins og tók fyrir hvernig og einn ákærðu og hvort einhverjir þættir lægju til refsiþyngingar eða -léttingar. Saksóknari byrjar á að nefna að Andri Leó sé með hreint sakavottorð. Ennfremur teljist ungur aldur hans honum til málsbóta en hann var nítján ára er brotið átti sér stað. Til refsiþyngingar teljist [...]
Málflutningur ákæruvaldsins hluti 8
Réttargæslumaður Maríu Ditas flytur mál sitt: Hún lýsir þessu máli öllu, og krafna Maríu og öllum dráttavöxtum. Málavextir ekki raktir sérstaklega, rétt er að taka fram að málavaxtalýsing í bótakröfunni var byggð á skýrslu Maríu og að réttargæslumaðurinn byggði skýrslu sína á sömu skýrslu [sem hún vísaði iðulega í.] Ljóst að lýsing í skýrslu Maríu [...]
Málflutningur Ragnars Aðalsteinssonar I
Málflutningur hefst að nýju klukkan 11:00. Dómari býður Ragnari Aðalsteinssyni, verjanda fjögurra hinna ákærðu, Sólveigar Önnu, Ragnheiðar, Snorra Páls og Steinunnar, (og þann verjendanna sem hefur haft sig mest í frammi) að standa upp og flytja mál sitt. Dómarinn tekur líka fram að það verði gert hlé klukkan 12:00. Ragnar hefur mál sitt: ,,Ég geri [...]
Málflutningur Ragnars Aðalsteinssonar II
Ragnar heldur áfram: “Heimsóknir á palla Alþingis eru ekkert sjaldgæfar. Húsmæðrafélag Reykjavíkur heimsótti Alþingi og fyllti pallana – hundrað konur voru á pöllunum – og þeim var boðið kaffi á eftir. Það má líka nefna þegar Gísli Helgason spilaði þjóðsönginn í “galleríiinu”, eins og Össur Skarphéðinsson nefnir þennan stað, þegar verið var að samþykkja lög [...]
Málflutningur Ragnars Aðalsteinssonar – 3 hluti
Hlé lýkur 13.15 Ragnar heldur málflutningi sínum áfram og fjallar um ákæru í þessu máli. Í fyrsta kafla ákærunnar er fjallað um brot gegn alþingi, valdsstjórninni, almannafrið og allsherjarreglu. Það virðist ekki vera ljóst um hvaða refsiákvæði er að ræða. Síðan er talað um húsbrot með því að hin ákærðu hafi, ásamt hópi óþekktra manna, [...]
Málflutningur Ragnars Aðalsteinssonar – 4.hluti
13:31 Ragnar víkur nú tali sínu að 100. grein almennra hegningarlaga. „Skilyrði fyrir aðgerðum lögreglunnar í þinghúsinu 8. desember 2008 var að skýra fólkinu frá að það ætti að fara út -og opna leiðina fyrir fólki.“ Hann segir skilyrði fyrir því að hægt sé að nota 100. greinina að vopnum hafi verið beitt [ef gengið [...]
Málflutningur Ragnars Aðalsteinssonar – 5.hluti
Ragnar vísar í dóm á bls. 15 í tilvísanaskrá: „Þar var hinn sýknaði ákærður því að þó hann hafi valdið lögreglumönnum tjóni [...] var þar um að ræða handtekinn mann að brjótast um. Það er ekki það sama og að ráðast með ofbeldi að lögreglumönnum. Að brjótast um í slíkum aðstæðum eru eðlileg viðbrögð flestra. [...]
Munnlegur málflutningur Tryggva Agnarssonar
Uppskriftin af málflutningi Tryggva er eins nærri orðréttri ræðu hans í dómssal og framast var unnt – en það gæti eitthvað hafa skolast til – ólíkt ræðu Ragnars var uppskriftin í réttarsal á mörgum höndum og því þurfti smá púsl að koma henni saman. Tryggvi hefur mál sitt: Ég flyt mál þetta fyrir hönd Jóns [...]
Málflutningur Brynjars Níelssonar
Brynjar Níelsson – verjandi Brynjar ávarpar dóminn, „háttvirtan settan ríkissaksóknara” og ákærðu. Brynjar segir frá því að hann sé verjandi Andra Leós og Þórs. Brynjar gerir eftirfarandi kröfu: að þeir verði sýknaðir af öllum sakargiftum, bótakröfu á hendur Andra Leó verði vísað frá dómi og allur sakarkostnaður falli á ákæruvaldið. Brynjar: Ákæruvaldið spurði fyrst alla [...]
Málflutningur Bjarna Eiríkssonar
Bjarni Eiríksson verjandi Teits tekur til máls. Bjarni tekur undir með Brynjari Níelssyni um að hann skilji hreinlega ekki ákærurnar. Hann reifar lýsingu í skýrslu á framferði Teits, sem jafnvel þótt sönn væri, væri ekki brot á 100. gr. almennra hegningarlaga. Hann krefst þess að skjólstæðingur sinn verði sýknaður, en til vara, að hann hljóti [...]
Hápunktar dagsins VI
Úr málflutningi Ragnars Aðalsteinssonar, verjanda „Í öllum ákæruatriðum er skilyrði að ákæruvaldið sýni fram á ásetning. Ég bið dóminn að hugleiða í hvaða tilgangi menn gera árásir. Venjulega gera menn árásir til að leggja eitthvað undir sig. Í gamla daga lögðu menn undir sig kastala, bæi, borgir og lönd. Það er líka hægt að gera [...]