Á þessari síðu birtast reglulegar fréttir um stöðu málsins, fyrirtökur og fleira sem því tengist. Hér er einnig safnað saman utanaðkomandi efni sem tengist dómsmálinu, til dæmis blaðagreinum, myndbönum, og myndum. Einnig má finna lið sem ber heitið Fjölmiðlavaktin en þar umfjöllun annarra miðla um málið skoðuð, greind og gagnrýnd þegar þess er þörf. Einnig eru hér upplýsingar á ensku um málið.
Við sem höldum síðunni uppi þykjumst ekki vera hlutlaus. Hugur okkar er með öllu því andófsfólki sem út um allan heim þarf að fara í gegnum réttarhöld og sitja af sér fangelsisvist, með tilheyrandi áreiti fjölmiðla, lögreglu og (oft á tíðum) almennings, fyrir það eitt að standa fast á sínum róttæku og óvinsælu skoðunum, og gera eitthvað til að framfylgja þeim.

















































